Nú hefur fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Eyjum ákveðið að hafa prófkjör við val á framboðslista XD fyrir kosningar til bæjarstjórnar 16. maí nk. . Eftir ítarlega umfjöllun varð niðurstaðan án mótatkvæða að efna til prófkjörs 13. mars nk. En með þeim hætti fær lýðræðið að njóta sín best. Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fá það hlutverk að raða á framboðslistann og fagna ég þeirri leið. Hlaut 1. sæti í rúmlega 900 manna prófkjöri í mars 2022 og hef verið oddviti okkar Sjálfstæðismanna á því kjörtímabili sem senn er að líða. Hef lagt mig fram í bæjarráði og bæjarstjórn að efna þau verkefni sem voru á stefnuskrá XD fyrir kosningarnar 2022.
Bæjarfélög á landsbyggðinni eiga undir högg að sækja gagnvart ríkisvaldinu og mikið verk að snúa við þeirri þróun. Rekstur grunn- og leikskóla og félagsþjónustan í heild sinni eru mikið metnaðarmál og þar fer fagmennskan með ferðina. Grunnurinn að velferðinni er öflugt atvinnulíf í Eyjum til lands og sjávar. Samstarf meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn hefur gengið vel á kjörtímabilinu. Eðlilega koma upp ágreiningsmál, en oftast tekist að ná lendingu. Traust og góð samvinna í bæjarstjórn mun skila okkur meiri grósku og öflugri byggð til framtíðar.
Eftir nokkra umhugsun og hvatningu bæjarbúa hef ég ákveðið að bjóða mig fram til að leiða D-lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í kosningum til bæjarstjórnar 16. maí nk.
Um leið óska ég eftir stuðningi í 1.sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem fer fram föstudaginn 13. mars 2026.
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.