Eyjamenn í eldlínunni
2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25
Elmar Erlingsson í leik með HSG Nordhorn-Lingen.

Eyjamennirnir Elmar Erlingsson og Arnór Viðarsson voru báðir í eldlínunni með sínum liðum í handboltanum í gær. Elmar leikur með HSG Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni og Arnór leikur með HF Karlskrona í sænsku úrvalsdeildinni.

Elmar skoraði fimm mörk fyrir Nordhorn og gaf fimm stoðsendingar, þegar þeir gerðu jafntefli við Dormagen. Leikurinn endaði 33-33. Nordhorn er í fimmta sæti í þýsku B-deildinni en Dormagen 15. sæti. 

Arnór Viðarsson skoraði tvö mörk í 33-31 sigri Karlskrona á Vasteras í sænsku úrvalsdeildinni. Karlskrona situr í 9. sæti með 21 stig á meðan Vasteras er í botnsætinu með aðeins fimm stig.

Nýjustu fréttir

Fyrsti kjarasamningur sjómanna á smábátum frá 2012
Líkn færir sjúkradeild HSU í Eyjum tvö ný tæki
Vont veður hrakti Eyjarnar af Gerpisflakinu
Handverks- og vörumarkaður í Höllinni
Steinunn sló botninn í Safnahelgina með húmor og frásagnargleði
Truflanir hjá Microsoft hafa áhrif
Jónína Einarsdóttir 100 ára
Rabbi á Dala-Rafni kvaddur – Ein vertíð stóð ævina á enda
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.