Síðasti séns! Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja
default
Vestmannaeyjabær. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Nú styttist í að frestur til að taka þátt í könnun um menningarstefnu Vestmannaeyja renni út. Á miðnætti annað kvöld lokar könnunin og því er síðasti séns fyrir íbúa að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á stefnumótun í menningarmálum sveitarfélagsins.

Hér að neðan má sjá nánar um könnunina og hvernig má bera sig af til að taka þátt í henni.

Nú er vinna við gerð menningarstefnu fyrir Vestmannaeyjabæ á lokasprettinum. Starfshópur á vegum bæjarins hefur tekið fjölda rýnihópaviðtala við hina ýmsu hópa í samfélaginu þar sem reynt hefur verið að fá fulltrúa sem flestra hagsmunaaðila að borðinu. Til þess að gefa enn fleirum kost á að segja sína skoðun hefur verið útbúin nafnlaus viðhorfskönnun sem svara má hér: Viðhorfskönnun vegna menningarmála í Vestmannaeyjum – Fill out form, settur upp hugmyndakassi í Safnahúsi Vestmannaeyja og netfangið menningarstefna@vestmannaeyjar.is virkjað. Stefnt er að því að gagnaöflun verði lokið fyrir 1. mars 2026.

Það er von okkar að áhugafólk um menningu í Vestmannaeyjum leggi lóð sitt á vogarskálarnar og eignist þannig hlut í menningarstefnunni.

Nýjustu fréttir

Aldan enn of há fyrir Álfsnes
Kjarnaboranir hefjast í Eyjum: „Stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa“
Vel heppnaður fundur
Krefjandi umræða styrkir okkur
Viðbragð við svari Eyþórs
Sterkari grunnskóli og öflugri framtíð
Samgöngur – ítrekuð áskorun til þeirra sem ráða
Jakob Frímann ásamt leynigesti á Hljómey Xtra í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.