„Vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Stutta útgáfan: Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir komandi sveitastjórnarkosningar,“ segir Óskar Jósúason upplýsingafulltrúi Laxeyjar á Fésbókarsíðu sinni í dag.
„Lengri útgáfan: Ég hef ávallt verið hrifinn af prófkjöri. Það gefur öllum jafnt tækifæri til að setja nafn sitt og orðspor að veði og gefur flokksmönnum kost á að velja sitt fólk á listann. Það var ástæðan fyrir því að ég fór í prófkjör fyrir fjórum árum og það er ástæðan fyrir því að ég geri það aftur í dag.
Fyrir fjórum árum ákvað ég að stíga fram. Án auglýsinga, án pistlaskrifa, ég lét nafn mitt og orðspor tala. Niðurstaðan var sjöunda sæti og staða varabæjarfulltrúa. Þessi fjögur ár hafa verið afar lærdómsrík og reynslan dýrmæt.
Nú vil ég halda áfram og stefni á þriðja sætið.
Mín reynsla kemur úr grunnskólanum, bæði sem kennari og stjórnandi. Sú reynsla er ómetanlegt veganesti í hvaða verkefni sem er. Á miðju kjörtímabili skipti ég um starfsvettvang sem hefur verið krefjandi og gefandi vegferð þar sem ég læri á hverjum degi. Það starf hefur gefið mér svo sannarlega nýjan vinkil inn í framtíð Eyjanna. En grunnurinn úr skólanum fylgir mér alltaf: að hlusta, vinna saman, setja sig í spor annarra og tryggja að allir stefni að sama markmiði. Heiðarleg nálgun nýtist hvar sem er.
Ég veit að framtíðin mín sé hér í Eyjum og vil ég tryggja að sömu tækifærin verði hér fyrir börnin mín. Til að það gerist þarf að vinna fyrir því, það gerist ekki af sjálfu sér. Ég er tilbúin að leggja mitt af mörkum til að framtíð eyjanna verði eins blómleg og mögulegt er.
Ég trúi á prófkjör vegna þess að ég treysti fólki. Það gefur einstaklingi eins og mér tækifæri til að bjóða fram krafta sína og rödd, þótt pólitískar tengingar í fjölskyldu eða vinahópi séu ekki miklar. Þá skiptir orðspor, nafn, reynsla og heilindi máli.
Þannig var ég líka alinn upp. Á hverjum degi átti maður að vera duglegur, samviskusamur og kurteis, maður væri að byggja sitt eigið orðspor. Ég skildi það ekki þá. Ég skil það núna.
Að mínu mati er prófkjörið hornsteinn Sjálfstæðisflokksins. Það fylgir því kraftur og gleði, einmitt það sem einkennir okkur Eyjamenn.
Það er frábært fólk búið að bjóða sig fram í prófkjörinu og alveg klárt að næstu dagar, vikur og mánuðir verða svo sannarlega skemmtilegir og er ég handviss um að útkoman verður glæsilegur listi sem flokksmenn Sjálfstæðisflokksins verða stoltir af,“ segir Óskar.