Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins hófst sl. þriðjudag og mun standa fram að kjördegi, sem er 13. mars.
Utankjörfundar atkvæðagreiðslan fer fram í Ásgarði og verður opið alla virka daga kl. 16 – 18. Um næstu helgi verður opið bæði laugardag og sunnudag kl. 13 – 15 og fimmtudaginn 12. mars, sem er síðasti dagur utankjörfundar atkvæðagreiðslu er opið kl. 16 – 21.
Ef kjósendur geta ekki, af einhverjum ástæðum, nýtt þessa auglýstu opnunartíma er hægt að hringja í síma 867-0494 og biðja um kosningu á öðrum tíma og verður reynt að verða við þeim óskum ef mögulegt er.
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer einnig fram í Valhöll í Reykjavík. Þar er hægt að kjósa alla virka daga milli kl. 10 – 16.
Allar nánari upplýsingar um prófkjörið má síðan finna á xd.is.
Fréttatilkynning frá kjörstjórn
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.