Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
lh_gardur_eyjar
Myndin er tekin í Landeyjahöfn. Eyjar.net/Eyjafréttir: TMS
Eythor H An Bakgr

Aðsend grein

Eyþór Harðarson

Ein af mestu framförum sem átt hafa sér stað í samgöngumálum Eyjamanna var tilkoma Landeyjarhafnar. Væntingarnar voru miklar og áhrif hafnarinnar á samgöngur milli lands og Eyja gífurleg.  Eins frábær og höfnin er, stóran hluta ársins, þá er tímabilið sem hún er ekki að þjóna okkur sem skildi alveg óbærilegt fyrir íbúa og fyrirtæki sem treysta á öflugar og stöðugar samgöngur.

Dýpkunarskipið

Fréttirnar í vikunni af bilun í búnaði dýpkunarskipsins Álfsnes voru af þeim toga að manni brá verulega og sá fram á nokkurra vikna bið á því að skipið gæti sinnt störfum sínum og ekkert annað skip er til staðar hérlendis til að sinna því verkefni.

Bæjarráð fundaði í gær með fulltrúa Vegagerðarinnar vegna þeirrar stöðu sem upp er komin.  Á þeim fundi fengum við þær upplýsingar að tekist hefði að útvega vélbúnaðinn sem bilaði og útlit sé fyrir að dýpkunarskipið verði klárt til dýpkunar að viku liðinni.

Eftir stendur samt sú staðreynd að allar líkur voru á að dýpkunarskipið hefði orðið fyrir bilun sem myndi verða þess valdandi að ekkert dýpkunarskip væri til í landinu til að halda höfninni opinni. Það er auðvitað algjörlega óásættanleg staða fyrir Eyjamenn að viðbragðið við biluðu dýpkunarskipi sé ekki öflugra hjá Vegagerðinni en raun ber vitni.

Herjólfur

Þessi staða verður ekki betri ef maður heimfærir þetta atvik á ferjuna sjálfa sem á að nota höfnina. Ef Herjólfur verður fyrir einhverskonar rekstrarstöðvun yfir vetrartímann og Landeyjarhöfn, eins og hún er, þá er Baldur varaskipið í hans stað. Það er öllum ljóst að Baldur er ekki að uppfylla þarfir Eyjamanna nema að mjög litlu leiti  þegar Landeyjarhöfn er lokuð.

Þolinmæði Eyjamanna er algjörlega á þrotum hvað varðar samgöngur yfir vetrartímann. Á þessu ófremdar ástandi þurfa strax að verða ásættanlegar breytingar. Breytingar sem skila auknu samgönguöryggi fyrir Vestmannaeyinga.

Ákallið

Verkefnið ætlar því miður að verða sagan endalausa og skora ég enn og aftur á þingmenn Suðurkjördæmis og innnviðaráðherra að leggjast á sveif með Vestmannaeyingum við að tryggja fjármagn til Vegagerðarinnar svo hún geti sinnt sínu hlutverki við að halda úti öruggum samgöngum við Vestmannaeyjar allt árið um kring.

 

Eyþór Harðarson,  sækist eftir 1.sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.