Það eru tímamót þegar einstaklingur stígur fram og ákveður að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið. Fyrir mér byggist þessi ákvörðun á miklum áhuga og vilja til að efla samstarf og tryggja öfluga framtíð fyrir Vestmannaeyjar. Ég hef tekið þátt í bæjarmálunum síðustu átta ár, stýrt fræðsluráði og unnið náið með stjórnsýslunni. Þessi reynsla hefur kennt mér hversu mikilvægt er að hlusta á fjölbreytt sjónarmið og takast á við verkefni á lausnamiðaðan hátt.
Ég er viðskiptafræðingur og viðurkenndur bókari að mennt og hef starfað bæði sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri í sjávarútveginum. Þessi bakgrunnur hefur veitt mér aukinn skilning á rekstri, ábyrgri fjármálastjórnun og nauðsyn þess að vinna alltaf út frá skýrum markmiðum. Í stjórnsýslu sveitarfélaga skiptir þetta miklu máli, bæði til að hámarka árangur og tryggja að ákvarðanir séu teknar af ábyrgð.
Þótt ég sé að stíga inn í nýtt pólitískt umhverfi er markmið mitt skýrt. Ég vil leggja mitt af mörkum til að gera Vestmannaeyjar betri. Mér finnst mjög mikilvægt að fólk með ólíkar skoðanir geti unnið saman að því að styrkja samfélagið og að nýjar raddir fái tækifæri til að hafa áhrif í bland við þá sem reyndari eru. Mikilvægt er að sem flestir komi að því að móta samfélagið til framtíðar. Ég hvet því alla til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 13. mars nk.
Vestmannaeyjar eru einstakt samfélag með mikinn kraft og ég trúi því að við getum saman skapað góða framtíð með skýrri sýn og samheldni. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri vegferð.
Aníta Jóhannsdóttir
Frambjóðandi í 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.