Opinn kynningarfundur, með frambjóðendum í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Eyjum, verður haldinn í Ásgarði í morgun, laugardaginn 7. mars. Fundurinn hefst kl. 11 og munu frambjóðendur þar kynna sig og sínar áherslur í prófkjörinu en að framsögum loknum gefst fundarmönnum færi á að beina spurningum til frambjóðenda.
Fundurinn er öllum opinn og eru þeir sem áhuga hafa á að kynna sér frambjóðendur í prófkjörinu og hvað þeir hafa fram að færa hvattir til að mæta. Boðið verður upp á súpu og brauð á fundinum, segir í tilkynningu frá kjörstjórn.