Segjum það sem við getum staðið við
MyndGJÁ
Guðmundur Jóhann Árnason

Aðsend grein

Guðmundur Jóhann Árnason

Ég hef einhversstaðar áður sagt eða skrifað þessa sögu sem hér fylgir, en hún á bara svo vel við núna.

Einn góður vinur minn að vestan sagði við mig þegar ég var að flytja til Eyja að Vestmannaeyjar minnti hann mikið á Flateyri, þar sem hann ólst upp. Faðir hans sagði við hann þegar hann var ungur:

„Hér í þessu samfélagi tökumst við hart á og þolum stundum ekki nágranna okkar. En þegar ég og nágranninn förum af stað frá bryggju, í gegnum öldurnar til að veiða, þá fylgjumst við með hvorum öðrum í gegnum öldudalinn og tryggjum að við komumst báðir til lands á ný.“

Þessi saga rifjast oft upp fyrir mér og sérstaklega nú þegar pólitíkin fer af stað með sínum kostum og göllum.

Ég nefnilega dáist að fólki sem er tilbúið að fjárfesta tíma sínum í stjórnmál. Þetta er starf sem er oft vanmetið. Þú setur sjálfan þig í skotlínuna, opinberlega, og þarft að hafa þykkan skráp til að leggjast ekki í kör á hverju kvöldi, eitthvað sem lítið skrifstofublóm úr Keflavík getur illa skilið.

Í litlu samfélagi eins og okkar verða pólitískar umræður líka persónulegri en víða annars staðar. Við hittumst í búðinni, í vinnunni, á íþróttaleikjum barnanna og í veislum, löngu eftir að kosningabaráttunni lýkur.

Þess vegna er þessi gamla saga úr sjávarplássi svo góð áminning.

Við getum tekist hart á. Við getum verið ósammála. Við getum jafnvel orðið pirruð hvert út í annað. Allt þetta er hollt og gott.

En við búum samt í sama samfélagi.

Og þegar við leggjum frá bryggju, hvort sem það er í atvinnulífi, samfélagsverkefnum eða einfaldlega lífinu sjálfu, þá viljum við öll að nágranninn komist líka heill til lands.

Þess vegna er ágætt að staldra við og muna eitt í þessu ati öllu sem er framundan.

Segjum það sem við getum staðið við… líka eftir kosningar.

 

Guðmundur Jóhann Árnason

Nýjustu fréttir

Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.