Styttist í að sundlaugin opni
Prófanir á nýjum tæknibúnaði hefjast á næstu dögum og verður laugin opnuð aftur þegar þeim lýkur
Sundlaug Opf 20250320 203232
Sundlaugin í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Endurnýjun á tæknibúnaði sundlaugarinnar í Vestmannaeyjum er á lokametrunum og styttist nú í að nýtt kerfi verði tekið í notkun. Lokafrágangur stendur yfir og stefnt er að því að sundlaugin verði opnuð aftur fyrir almenning þegar prófunum lýkur.

Á vef Vestmannaeyjabæjar segir að vinnu við uppsetningu nýs búnaðar miði vel áfram. Gert er ráð fyrir að rafvirkjar og pípulagningamenn ljúki uppsetningu búnaðar í þessari viku. Í kjölfarið mun fara fram ítarleg prufukeyrsla á öllum kerfum til að tryggja öryggi og að búnaðurinn virki sem skyldi.

Í næstu viku verður tölvustýrt stjórnkerfi sett upp. Kerfið mun sjá um sjálfvirka stýringu á nýju hreinsikerfi og vatnsbúnaði sundlaugarinnar. Þegar prófanir á stjórnkerfinu hafa verið kláraðar verður hafist handa við að fylla laugina. Að því loknu verður sundlaugin opnuð á ný fyrir almenning.

Í tilkynningu Vestmannaeyjabæjar er íbúum þökkuð sýnd biðlund á meðan verkið hefur staðið yfir við þessar mikilvægu endurbætur.

Nýjustu fréttir

Styttist í að sundlaugin opni
Segjum það sem við getum staðið við
Guðrún Erlings lætur fimmtán ára draum rætast
Framtíðin er í okkar höndum
Flugútboð til Eyja
Óásættanlegt ástand í Landeyjahöfn
Mokstur á þjóðveginum til Vestmannaeyja
ÍBV fær ÍR í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.