Tekin hefur verið ákvörðun um að fella niður seinni ferðir Herjólfs vegna veðurs og sjólags. Ferðirnar voru áætlaðar kl. 16:00 frá Vestmannaeyjum og kl. 19:45 frá Þorlákshöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu.
Farþegar sem áttu bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni farþegar og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur. Útlit með siglingar fyrri part laugardags lítur ekki vel út eins og staðan er núna, ef gera þarf breytingar á áætlun verður það gefið út í síðasta lagi kl. 06:00 í fyrramálið.
Uppfært kl. 21.40
Ákvörðun hefur verið tekin að fella niður fyrri ferð morgundagsins sem áætluð var til/frá Þorlákshöfn kl. 07:00 og 10:45 vegna veðurs og sjólags. Farþegar sem eiga bókað eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu Herjólfs til þess að færa bókun sína. Ákvörðun sem þessi er alltaf tekin með hagsmuni bæði farþega og áhafnar í huga, vonum við að því sé sýndur skilningur .Hvað varðar siglingar fyrir seinnipart laugardags verður gefin út tilkynning fyrir kl. 15:00, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.