Fólk en ekki flokka
Hildur Solv Ads
Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Aðsend grein

Hildur Sólveig Sigurðardóttir

,,Ég vildi að ég gæti kosið fólk en ekki flokka” er setning sem ég hef fengið að heyra óteljandi oft á mínum pólitíska ferli. Margir eiga erfitt með að festa sig við ákveðna stjórnmálaflokka, sér í lagi í sveitarstjórnarmálum þar sem áherslumunurinn er oft ekki jafn áberandi eins og í landsmálunum. Bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum hefur líka borið gæfa til þess amk. svo lengi sem ég hef tekið þátt í pólitík að standa þétt saman þvert á flokka í þeim stóru hagsmunamálum sem við þurfum að beita okkur í gagnvart ríkinu á borð við samgöngur, heilbrigðismál og orkumál.

Nú stendur yfir prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum, það er eins nálægt persónukjöri til sveitarstjórna og við komumst. Til þess að taka þátt þarftu að vera 15 ára, með lögheimili í Vestmannaeyjum og að vera skráður í Sjálfstæðisflokkinn en hægt er að skrá sig  á www.xd.is.

Frelsi til að velja

Frelsi og ábyrgð einstaklingsins, mannréttindi og jafnræði, eru hornsteinar stefnu Sjálfstæðisflokksins. Í prófkjöri fá flokksfélagar frelsi til að velja sinn framboðslista, velja þá einstaklinga til forystu sem þeir treysta best til að leiða flokkinn til sigurs í næstu kosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum er öllum opinn og hvet ég þig eindregið til að taka þátt með okkur í starfinu og óska ég eftir þínum stuðningi í 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar.

 

Hildur Sólveig Sigurðardóttir

Sjúkraþjálfari og bæjarfulltrúi

Nýjustu fréttir

Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Íslensku stelpurnar töpuðu gegn Svartfjallalandi
Draumurinn rættist á 100 ára afmæli – Taflfélag Vestmannaeyja Íslandsmeistari
Andlát: Einar Birgir Sigurjónsson
Vestmannaeyjar – Grænt ljós
Dramatískur sigur hjá Taflfélagi Vestmannaeyja – úrslitin ráðast í dag
Fólk en ekki flokka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.