Á rauðu ljósi í Reykjavík
Georg An Bakgr 2

Aðsend grein

Georg Eiður Arnarson

Einn af uppáhalds útvarpsmönnunum mínum, Ívar Guðmundsson á Bylgjunni, var með athyglisverða pælingu í liðnum Sturluð staðreynd í vetur, en þar kom fram að samkvæmt útreikningum væri meðal biðtími höfuðborgarbúa á rauðu ljósi ca. 6 mánuðir á ári og ég fór að velta þessu fyrir mér í samhengi við ferð okkar hjóna snemma hausts til Alicante, en þrátt fyrir að þar væri oft gríðarleg umferð og að við hjónin hefðum farið töluvert um, þá lentum við aldrei á rauðu ljósi, heldur leysa Spánverjar þetta með því að setja hringtorg frekar en ljós.

Við heimkomuna keyrðum við í gegnum borgina, upp með Mjóddinni og á leiðinni voru 6 ljós og við lentum 4 sinnum á rauðu ljósi og í öll skiptin var það bara einn bíll sem beið eftir að komast yfir á aðalveginn.

Inni á Youtube er forvitnilegt myndband sem heitir The mistake that made americans hate roundabouts (sjá myndband fyrir neðan greinina). Þar segir ma. annars frá litlu bæjarfélagi, Carmel, Indiana með liðlega 30 þúsund íbúa en þar var ákveðið að fara skipulega í að fækka rauðum ljósum og setja í staðinn hringtorg. Ástæðan fyrir því að ákveðið var að prufa þetta var mikill fjöldi slysa á gatnamótum með ljósum og árangurinn er sá, að með því að setja hringtorg í staðinn fyrir ljós hefur slysum fækkað gríðarlega.

Ef við skoðum þetta aðeins hjá okkur, þá er t.d. á þjóðvegi 41 út úr Hafnarfirði hringtorg þar sem er gríðarleg umferð, en umferðin gengur líka bara vel. Aftur á móti, í Ártúnsbrekkunni er fullt af ljósum á leiðinni og þar eru endalausar biðraðir á háannatíma.

Við sjáum þetta líka ágætlega á leiðinni inn í Mosfellsbæ, þar er mikið af hringtorgum en umferðin gengur bara nokkuð vel, en svo koma hinsvegar rauð ljós niðri í Mosfellsbæ og þá hægist umferðin um leið. En að sjálfsögðu eru hringtorg ekki möguleg allstaðar og sumstaðar verða einfaldlega bara að vera ljós, en svo er alltaf spurning hvernig skipulagið er í kring um hringtorg en það hefur að sjálfsögðu mikil áhrif. Gott dæmi um það er hringtorgið inn á Selfoss eftir brúna, en stundum nær biðröðin að brúnni lang leiðina að Hveragerði.

En hvers vegna er það? Jú, vegna þess að allir sem fara í Krónuna eða Apótekið þurfa líka að fara í gegnum hringtorgið og þetta er mjög áberandi t.d. seinni part á föstudögum þegar allir eru að versla og augljóslega hefði staðan við þetta hringtorg verið betri ef þessar stóru verslanir hefðu verið einhver staðar annar staðar og augljóslega er þetta hluti af ástæðunni fyrir því að nú er verið að byggja nýja brú á öðrum stað fyrir einhverja milljarða.

Hér í Eyjum eru ljós á gatnamótum Strandvegar og Heiðarvegs. Yfirleitt gengur umferðin þar nokkuð greiðlega en á sumrin, þegar Herjólfur siglir 8 ferðir og mikið er um ferðamenn þá getur röðin náð alveg frá Herjólfi að gatnamótunum, en það virðist vera þannig að ljósin séu þannig stillt að, um leið að fyrsti bíll beygir til hægri eða vinstri þá merkja ljósin það að einhver sé farinn að bíða og fara þá að skipta sem oft gerir það að verkum að það geti tekið langan tíma að losa röðina sem kemur úr Herjólfi. Ekki veit ég hvort að þarna væri pláss fyrir hringtorg, en klárlega myndi umferðin þarna ganga betur ef svo væri.

Ein smá pæling í viðbót. Á mörgum stöðum hafa menn leyst vandamál vegna gangandi fólks með því að þú ýtir á takka, þá kemur rautt og umferðin stoppar, en væri ekki nær að gera það þar sem það er hægt einfaldlega göngugöng undir vegina og þannig tryggja það að umferðin gangi betur?

Set þessa punkta frá mér til umhugsunar um það hvort ekki væri viða hægt að leysa rauð ljós af með hringtorgum, en það er nú einu sinni þannig að ef útreikningar sem Ívar á Bylgjunni fjallaði um séu réttir, þá er það nú einu sinni þannig að tíminn er jú peningar og þetta er því gríðarlega dýrt fyrir alla.

 

Georg Eiður Arnarson

Play Video

Nýjustu fréttir

Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjamenn sækja Fram heim
Á rauðu ljósi í Reykjavík
Elmar kom að tólf mörkum fyrir Nordhorn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.