Til Sjálfstæðismanna
Trausti Hjaltason

Aðsend grein

Trausti Hjaltason

Ég verð að viðurkenna að það er skrítið að vera í prófkjöri og reyna að ná sæti á lista með vinum sínum, þú ferð út fyrir þægindaramman. Eitt af hlutverkum okkar í pólitík er að upplýsa fólk um stöðuna þó að það sé ekki alltaf vinsælt að segja frá þar sem upplýsingarnar geta leitt til ,,óþægilegrar,, umræðu. Við vitum það öll að þegar upp er staðið þá snýst þetta allt saman um að gera það sem við teljum farsælast fyrir samfélagið.

Ég get lofað ykkur, að ég mun tala okkar máli í hagsmunagæslunni, koma hugmyndum áleiðis á réttan stað og hlusta á íbúa sem eiga mikið undir að hlutirnir fari í betri farveg. Ég get líka lofað ykkur að ég mun leggja mig fram við að mynda gott lið sem getur rætt málin á opinskáan hátt og komist að sameiginlegri niðurstöðu. Lið sem mun hafa gleðina að leiðarljósi.

Góð samskipti og upplýsingagjöf getur verið lykillinn að virkri þátttöku sem er svo mikilvæg. Ég hef upplifað Sjálfstæðisflokkinn sem einingu þar sem margar skoðanir rúmast, lýðræðið fær að njóta sín. Fram á föstudag höfum við frelsi til að velja okkur fólk til forystu. Ég gef kost á mér í 1. sætið og óska eftir þínum stuðningi til að leiða flokkinn inn í komandi vaxtarskeið í mest spennandi sveitarfélagi landsins.

 

Trausti Hjaltason
Óskar eftir 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Nýjustu fréttir

Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna
ÍBV með mikilvægan sigur gegn Fram
Hlynur bætti Íslandsmetið í hálfmaraþoni
Líflegt spjall á N1 við Friðarhöfn
Tjaldsvæði opnað inni í Herjólfshöll á Þjóðhátíð
Örlygur Helgi ,,fyrst og fremst heiður”
Mannabreytingar í nefndum bæjarins eftir flokkaskipti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.