
Hér í Vestmannaeyjum má finna fjölbreyttar fasteignir með ólíka kosti, staðsetningu og möguleika. Í fasteignaumfjöllun Eyjafrétta skoðum við eignir sem eru til sölu hverju sinni og rýnum í hvað gerir þær áhugaverðar fyrir væntanlega kaupendur. Farið er yfir skipulag, helstu kosti og þá þætti sem geta skipt máli við val á nýju heimili.
Að þessu sinni tökum við fyrir rúmgóða og vel staðsetta eign á Sóleyjargötu 5. Um er að ræða hæð, ris og bílskúr í tvíbýli. Húsið er byggt úr steini árið 1955 og er eignin 194,7 m2 skv. fasteignaskrá þar af er bílskúr skráður 63,3 m2 byggður árið 2012.

Eignin er á góðum stað og nýtur glæsilegs útsýnis. Á undanförnum árum hefur verið farið í umtalsvert viðhald og endurbætur. Húsið hefur verið einangrað og klætt að utan með álklæðningu og búið er að skipta um flesta glugga. Innanhúss hefur eldhús verið endurnýjað, gólfefni víða endurnýjuð og eignin máluð. Í íbúðinni eru fjögur rúmgóð svefnherbergi
Bílskúrinn er rúmgóður og býður upp á mikla möguleika, hvort sem hann er nýttur sem geymsla, vinnurými eða til frekari uppbyggingar.
Sömu eigendur eiga einnig neðri hæð hússins sem er 106,8 fermetrar. Um er að ræða tvö fastanúmer og því möguleiki á að kaupa allt húsið, samtals um 300 fermetra, sem opnar á fjölbreytta nýtingarmöguleika, til dæmis fyrir stærri fjölskyldu.
Við heyrðum hljóðið í Guðjóni Pétri eiganda eignarinnar og fengum hann til að svara nokkrum spurningum fyrir Eyjafréttir

Hvað myndir þú segja að væru helstu kostir eignarinnar?
„Þetta eru í raun tvær eignir og ég myndi segja að báðar henti vel sem fjölskyldueignir. Efri hæðin er fimm herbergja íbúð á miðhæð og í risi. Húsið hefur verið klætt og einangrað að utan og búið er að skipta um flesta glugga. Þakið var tekið í gegn fyrir nokkrum árum, þannig að húsið í heild sinni er í mjög góðu ástandi.
Það sem á eftir að klára er frágangur á lóð að framan, þar sem fyrirhugaður er pallur og lítið grassvæði. Annars er miðhæðin og risið ótrúlega flott og rúmgóð fimm herbergja íbúð með sérbýlisbrag.“
Hvað myndir þú segja að væri stærsti kosturinn við staðsetninguna?
„Það er stutt í bæði grunnskóla og framhaldsskóla. Svo er auðvitað frábært útsýni, útsýni á heimsmælikvarða myndi ég segja. Þá eru nágrannarnir líka einstaklega góðir. Í húsinu við hliðina eru þrjár íbúðir þar sem búa þrjár yndislegar konur sem taka vel á móti fólki og skapa notalegt og vinalegt umhverfi. Fólk má því búast við góðu nágrannasamfélagi.“
Bílskúrinn býður upp á ýmsa möguleika. Hvernig sjáið þið fyrir ykkur að nýir eigendur gætu nýtt það rými?
„Bílskúrinn er stór og veglegur og býður upp á mikla möguleika. Hann er í raun fokheldur og um 70 fermetrar að stærð. Þar væri til dæmis hægt að útbúa íbúð eða nýta sem rúmgóða geymslu, til dæmis fyrir hjólhýsi eða annað. Hann er tiltölulega nýlegur og mjög gott rými með fjölbreytta nýtingarmöguleika.“
Frekari upplýsingar um eignina má finna hjá Halldóru Kristínu fasteignasala hjá Eyjaeignum. Hægt er að hafa samband við hana í gegnum tölvupóst, dora@eyjaeignir.is.
