Röddin, undankeppni upplestrarkeppni 7. bekkjar GRV fór fram í Tónlistarskóla Vestmannaeyja í gær. Keppnin var mjög jöfn og voru dómarar lengi að komast að niðurstöðu.
Að lokum tókst það. Fyrsta til þriðja sæti hrepptu þær Bríet Björk Hafþórsdóttir, Caritas Rós Tinnudóttir og Kolbrá Njálsdóttir. Í fjórða sæti lenti Guðbjörg Karlsdóttir og er hún varamaður lesaranna.
Við í GRV óskum þeim og öllum lesurunum innilega til hamingju með frábæran árangur. Í apríl munu krakkarnir keppa fyrir hönd GRV í upplestri við nokkra skóla á Suðurlandi en keppnin er haldin í Vík í Mýrdal að þessu sinni.
Af grv.is


Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.