Það kennir ýmissa grasa í yfirferð Halldórs B. Halldórssonar um Heimaey í dag. Meðal annars fer hann með okkur rúnt um Íþróttamiðstöðina en þar stendur til að byggja við. Bæjaryfirvöld hafa óskað eftir tilboðum í svokallaða klefabyggingu.
Um er að ræða tveggja hæða steinsteypta viðbyggingu við Íþróttamiðstöðina Vestmannaeyjum með léttbyggðu þaki. Á fyrstu hæð verði fullfrágengnir búningsklefar og annarri hæð skal skila fokheldri. Öll viðbyggingin skal kláruð að utan. Samtals stærð viðbyggingar báðar hæðir er alls 1990 m2. Grafið hefur verið fyrir húsinu og fyllt upp undir undirstöður og þannig tekur verktaki við þjappaðri fyllingu.
Kíkjum í ferðalag um Eyjuna á tveimur mínútum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.