„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Tæp 18 þúsund tonn veiddust á loðnuvertíð Vinnslustöðvarinnar
Gullbergið á loðnumiðunum á vertíðinni. Skip Vinnslustöðvarinnar veiddu tæplega 18 þúsund tonn af loðnu. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Skip Vinnslustöðvarinnar hafa lokið loðnuveiðum vertíðarinnar eftir góðan endasprett og tæplega 18 þúsund tonna afla. Skipstjórinn á Gullberginu segir meira af loðnu hafa sést á miðunum í vetur en í langan tíma. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar.

Að sögn Sindra Viðarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs hjá Vinnslustöðinni, hefur vertíðin gengið vel. „Við erum búin að veiða þau tæpu 18.000 tonn sem við höfðum til ráðstöfunar og vertíðin hefur gengið mjög vel. Við munum ná að framleiða allt sem við ætluðum, bæði í heilfrystingu og hrognum,“ segir Sindri.

Að hans sögn er það sérstaklega ánægjulegt í ljósi stöðunnar á mörkuðum, þar sem hráefni til hrygnumarkaðar hefur verið af skornum skammti undanfarin ár. „Það skiptir miklu máli að geta þjónustað hrygnumarkaðinn sem hefur vantað hráefni eftir mögur síðustu ár.“

Hann segir jafnframt jákvætt að sjá merki um að loðna sé víða á ferðinni. „Vonandi skilar það sér í góðri hrygningu,“ segir Sindri og bætir við að næsta verkefni verði að byggja aftur upp markaðinn sem hafi dregist saman á síðustu árum.

Góðar horfur fyrir næstu ár

Gullbergið kom til hafnar með síðasta loðnuaflann á vertíðinni rétt fyrir afmælisdag skipstjórans, Jóns Atla Gunnarssonar. Hann segir síðasta túrinn hafa gengið vel þótt leitin hafi tekið tíma.

„Við leituðum fyrst við Eyjar en náðum ekki að kasta þar. Síðan fórum við vestur undir Reykjanes og áfram á Garðskaga þar sem var eitthvað að sjá. Að lokum fengum við gott kast við Malarrif, suður af Snæfellsnesi, þar sem við tókum um 800 tonn, svo nokkur minni köst og enduðum á um 600 tonnum í gærmorgun,“ segir Jón Atli.

Að hans sögn hefur verið mikið af loðnu á miðunum í vetur. „Það komu tvær göngur með Suðurlandinu og sú seinni var stærri, sem er frekar óvenjulegt. Einnig kom ganga að vestan. Það hefur verið meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma.“

Hann segir skipverja fylgjast vel með þroska loðnunnar á vertíðinni. „Við tökum reglulega sýni þar sem við vigtum hlutfall hængs og hrygnu og metum hrognaþroskann. Þessar upplýsingar eru sendar í land til að upplýsa vinnsluna um hvert kast fyrir sig.“

Jón Atli segir að það sem sést hafi á miðunum gefi tilefni til bjartsýni. „Það eru klárlega góðar horfur fyrir næstu þrjú til fjögur árin miðað við það sem við höfum séð.“

Stemningin um borð hafi einnig verið góð. „Það er alltaf mikil spenna í kringum loðnuveiðar. Stundum er loðnan svo þétt að menn þurfa að passa vel upp á veiðarfærin. Í Breiðafirðinum sáum við til dæmis alveg svakalega þétta torfu.“

Sjá má alla umfjöllunina hér auk myndasyrpu af miðunum og úr vinnslunni.

Nýjustu fréttir

„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Besta rekstrarafkoma í 15 ár
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.