Ísólfur Gylfi - 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Ísólfur Gylfi á sundi í pólsku vatni.

Vélbáturinn Hellisey VE 503 fórst að kvöldi sunnudagsins 11. mars 1984 um kl. 23.00. Með Hellisey VE fórust: Hjörtur R. Jónsson skipstjóri 25 ára, Pétur Sigurðsson, 1. vélstjóri 21 árs, Engilbert Eiðsson 2. vélstjóri, 19 ára, og Valur Smári Geirsson matsveinn 26 ára. Guðlaugur Friðþórsson stýrimaður, sem var 22 ára gamall, komst einn lífs af. Guðlaugur  synti 5 til 6 km í svartamyrkri og köldum sjó og náði landi á austanverðri Heimaey og braust um úfið hraun til byggða.

Þetta kemur fram á Wikipedia. Ótrúlegt afrek sem vakti athygli víða um heim. Þessa hefur síðan verið minnst með Guðlaugssundi í sundlauginni í Eyjum sem nú er lokuð vegna viðgerða. Um þetta afrek skrifar Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrum alþingismaður með meiru á Fésbókarsíðu sinni.

„Sund er dásamleg íþrótt og nytsöm. Í dag minnumst við þess að 42 ár eru síðan Guðlaugur Friðþórsson, stýrimaður háði hið frækilega afrek að synda í köldum sjó um sex km eftir að bátur hans Hellisey sökk. Landtakan var líka afrek út af fyrir sig. Ég hvet sundmenn til að minnast þessa, ég veit reyndar um marga sem hafa það fyrir hefð að synda þessa vegalengd bæði í Vestmannaeyjum og annarsstaðar í ylvolgum sundlaugum. Þessi “montmynd” af mér þar sem ég var að synda í vatni í Póllandi sem er ekkert afrek,“ segir Ísólfur Gylfi og má taka undir með honum.

Nýjustu fréttir

Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
„Meira af loðnu en maður hefur séð í langan tíma“
Eyjalistinn boðar til félagsfundar
Góð aðsókn á fundi Eyþórs
Karla- og kvennalið ÍBV töpuðu í Lengjubikarnum
Heimaey í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.