Dísa leiðir Eyjalistann
Framboðslisti Eyjalistans 2026 kynntur í dag
Framboðslisti Eyjalistans í bæjarstjórnarkosningunum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Uppstillingarnefnd Eyjalistans hefur nú lokið störfum og var tillaga að framboðslista kynnt og lögð fram til samþykktar á fjölmennum félagsfundi seinnipartinn í dag. Stjórn Eyjalistans tilkynnir hér með að listinn var samþykktur samhljóða og mikil ánægja var á meðal félagsfólks með listann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu.

Arna Huld Sigurðardóttir, formaður kom fram þökkum frá uppstillingarnefnd um þær fjölmörgu ábendingar sem þeim barst í ferlinu. Að auki þakkaði hún núverandi bæjarfulltrúum, Njáli Ragnarssyni og Helgu Jóhönnu Harðardóttur fyrir þeirra góðu vinnu en þau starfa að sjálfsögðu áfram fyrir Eyjalistann út þetta kjörtímabil.

Stjórn listans skynjar mikinn meðbyr og við förum með gleði og jákvæðni inn í komandi kosningar. Arndís María Kjartansdóttir er nýr oddviti listans en hún er kennari, löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali ásamt því að hún nemur nám í jákvæðri sálfræði. Stjórnin bindur miklar vonir við gott samstarf við Arndísi ásamt öllum þeim sem bjóða sig fram sem og félagsfólki!

Framundan hjá Eyjalistanum er áframhaldandi málefnavinna og virkt samtal við félagsfólkið okkar! X-E í vor!

 

Framboðslisti Eyjalistans í heild sinni:

  1. Arndís María Kjartansdóttir. Framhaldsskólakennari & löggiltur fasteigna, fyrirtækja- og skipasali. Meistaranemi í jákvæðri sálfræði.

  2. Anton Örn Björnsson. Kennari & tómstunda- og félagsmálafræðingur.

  3. Erlingur Guðbjörnsson. Rekstrarstjóri & varabæjarfulltrúi.

  4. Hildur Rún Róbertsdóttir. Leikskólakennari & varabæjarfulltrúi.

  5. Jessý Friðbjarnadóttir. Kennari.

  6. Ágúst Erling Kristjánsson. Húsasmiður.

  7. Eyrún Haraldsdóttir. Tómstunda- og félagsmálafræðingur.

  8. Zindri Freyr Ragnarsson Caine. Guðfræðingur & bókavörður.

  9. Þorsteinn Ívar Þorsteinsson. Matreiðslumaður.

  10. Þórdís Jóna Guðmundsdóttir. Hjúkrunarfræðingur.

  11. Hafdís Víglundsdóttir. Sjúkraliðanemi & starfsmaður á búsetukjarna.

  12. Bergþóra Sigurðardóttir. Öryrki.

  13. Stefán Jónasson. Eldri borgari og fyrrum bæjarfulltrúi.

  14. Hafdís Ástþórsdóttir. Hársnyrtimeistari & móðir.

  15. Bjartey Hermannsdóttir. Bókari.

  16. Friðrik Björgvinsson. Framkvæmdastjóri.

  17. Hrefna Valdís Guðmundsdóttir. Skjalavörður

  18. Hörður Þórðarsson. Leigubílstjóri.

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.