Eyjafréttir birta í dag það sem kallað er ‘’fréttaskýring’’ eftir Tryggva Má Sæmundsson um drög að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar fyrir 2025. Helstu kennitölur úr ársreikningnum eru birtar eftir fyrri umræðu en reikningurinn sjálfur á að vera meðhöndlaður sem trúnaðarmál þangað til eftir síðari umræðu þar sem hann getur tekið breytingum milli umræðna. Á þessu hefur greinilega orðið misbrestur núna sem er bagalegt.
Um ‘’fréttaskýringuna’’ sjálfa er það að segja að hún er sérkennileg samsuða af misvísandi upplýsingum, samanburði á ósambærilegum tölum og einkennist af vanþekkingu höfundarins á reikningsskilavenjum og mislestri á ársreikningi.
Efnislega verður þessum samsetningi svarað þegar ársreikningurinn liggur endanlega fyrir – en tilkynningin frá Vestmannaeybæ og fundargerð bæjarstjórnar frá því í gær, með öllum helstu kennitölum úr ársreikningi, stendur að sjálfsögðu óhögguð.
Þetta er besta rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar í 15 ár eins og glögglega mun koma fram í ársreikningi þegar hann verður birtur.
Páll Magnússon
Athugasemd ritstjórnar
Eyjafréttum er bæði ljúft og skylt að birta allar athugasemdir Vestmannaeyjabæjar, eða einstakra bæjarfulltrúa, um fréttaskýringu Eyjafrétta á drögum að ársreikningi Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025.
Hins vegar gerum við athugasemd við þá fullyrðingu Páls Magnússonar að kennitölur (helstu lykiltölur) úr ársreikningi sem bærinn birti á heimasíðu sinni standi „að sjálfsögðu óhaggaðar“ þó að ársreikningurinn, þar með rekstrarreikningur og efnahagsreikningur, myndi hugsanlega taka breytingum í seinni umræðu bæjarstjórnar. Slíkt stenst auðvitað enga skoðun.
Mikilvægt er fyrir ritstjórn að geta rýnt innihald gildishlaðinna fréttatilkynninga Vestmannaeyjabæjar. Í þessu tilfelli er eðlilegt að gera athugasemd við vinnubrögð Vestmannaeyjabæjar. Ljóst er að fréttatilkynning bæjaryfirvalda var ekki í eðlilegu samræmi við niðurstöður ársreiknings og er það hlutverk fjölmiðla að leiðrétta slíkt með skýrum hætti. Þá gerir ritstjórn athugasemd við það orðalag sem Páll Magnússon kýs að nota um Tryggva Má Sæmundsson.