Uppfært: kl. 01.50
Lokatölur liggja nú fyrir í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum þar sem raðað var á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. Samkvæmt niðurstöðunum hafnaði Eyþór Harðarson í efsta sæti listans.
Á kjörskrá voru 1.672 og greiddu 1.178 atkvæði sem jafngildir 70,5% kjörsókn. Af þeim voru 36 atkvæði auð eða ógild.
Endanleg niðurstaða í efstu sætum prófkjörsins er eftirfarandi:
Alls gáfu fjórtán einstaklingar kost á sér í prófkjörinu þar sem kosið var um átta efstu sæti listans. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta leit við á kosningavökunni í Akóges í kvöld og má sjá myndir frá honum hér að neðan.