Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Starfsmenn Vinnslustöðvarinnar á sýningunni. Ljósmynd/vsv.is

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar hafa undanfarna daga tekið þátt í Seafood Expo North America í Boston, stærstu sjávarútvegssýningu Norður-Ameríku, sem fram fór dagana 15.–17. mars í Thomas M. Menino Convention & Exhibition Center.

Á sýningunni koma saman þúsundir kaupenda, birgja og sérfræðinga víðs vegar að úr heiminum. Í ár spannar viðburðurinn um 20.000 fermetra sýningarrými og taka þar þátt 1.215 sýnendur frá 50 löndum, sem undirstrikar alþjóðlegt vægi hennar. Frá þessu er greint á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar.

Umframeftirspurn

Vinnslustöðin var á staðnum til að kynna starfsemi sína, hitta lykilviðskiptavini og efla tengsl við samstarfsaðila. Sýningin er mikilvægur vettvangur fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi til að miðla nýjungum, fylgjast með þróun í greininni og skapa ný tækifæri á markaði. Með þátttöku sinni styrkir Vinnslustöðin stöðu sína á alþjóðamarkaði og heldur áfram að byggja upp öflugt tengslanet.

Mikil eftirspurn er eftir fiskafurðum vestanhafs og í raun má segja að skortur sé á mörgum helstu afurðaflokkum. Albert Erluson, framkvæmdastjóri Hólmaskers, segir að umframeftirspurn sé í frystum ýsuafurðum, sem fyrirtækið framleiðir, og enn meiri í þorskafurðum.

Mikilvægt að halda vel utan um kaupendur

Susan Young, framkvæmdastjóri VSV America, tekur í sama streng og segir að fyrirspurnir berist vikulega umfram það sem hægt sé að verða við.

„Það er gott að vel gangi að selja en þó er óhætt að segja að full mikil spenna sé í markaðnum. Það er mikilvægt að halda vel utan um kaupendur í svona ástandi, afkoma viðskiptavina er undirstaða okkar eigin afkomu,“ segir Susan.

Fréttin á vsv.is.

Nýjustu fréttir

Eyjafiskur í mikilli sókn vestanhafs
Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.