Boranir hefjast í apríl
Á Eiðinu verða framkvæmdar kjarnaboranir sem veita mikilvægar upplýsingar um jarðlög á fyrirhugaðri leið. Ljósmynd/aðsend.

Eyjagöng ehf. hafa gert samning við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmd kjarnaborana sem liður í áframhaldandi könnun á fýsileika fastrar vegtengingar milli lands og Vestmannaeyja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Markmið rannsóknanna er að afla ítarlegra upplýsinga um jarðfræðilegar aðstæður á fyrirhugaðri leið. Boranirnar munu fara fram á tveimur stöðum, annars vegar á Eiðinu á Heimaey og hins vegar í Landeyjasandi við bæinn Kross.

Undirbúningur hefst í byrjun apríl og er áætlað að boranir hefjist í lok mánaðarins. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga rannsóknarinnar ljúki í byrjun júlí. Niðurstöðurnar munu nýtast sem lykilgögn við frekara mat á tæknilegum og framkvæmdalegum möguleikum verkefnisins.

„Við leggjum ríka áherslu á að allar ákvarðanir um framtíðar vegtengingu séu byggðar á traustum vísindalegum grunni. Samstarfið við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða tryggir okkur mikla sérþekkingu við þessa mikilvægu gagnaöflun,” segir Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga og bætir við að þó að langtímamarkmiðið sé skýrt, þá sé þetta rannsóknarstig lykillinn að því að hægt sé að meta alla möguleika af fagmennsku og nákvæmni.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.