Rafvæðing, snjallkerfi og sífellt meiri áhersla á hugbúnað eru að umbreyta bílamarkaðinum. Á síðustu árum hafa ný tæknifyrirtæki haslað sér völl í greininni og líta á bílinn sem meira en farartæki. Eitt þeirra er rafbílaframleiðandinn XPENG sem hefur á skömmum tíma vakið athygli fyrir nýsköpun og tækni.
Á Íslandi sér Bílaumboðið Una um sölu og þjónustu XPENG. Fyrirtækið er systurfyrirtæki Bílaumboðsins Öskju og bæði eru í eigu Inchcape. „XPENG er fyrst og fremst tæknifyrirtæki með skýra sýn á hvernig samgöngur munu þróast,“ segir Kristinn Jón Baldursson, sölustjóri XPENG hjá Unu. „Frá stofnun fyrirtækisins árið 2014 hefur markmiðið verið að þróa bíla sem sameina snjalla tækni, háþróaðan hugbúnað og einfalda notendaupplifun”.
Bíllinn sem snjalltæki
Að sögn Kristins lítur XPENG á bílinn með öðrum hætti en hefðbundnir bílaframleiðendur. „Við horfum á bílinn ekki aðeins sem farartæki heldur sem snjallt tæki sem þróast með notandanum,“ segir hann. „Hugbúnaðaruppfærslur og nýir eiginleikar geta bætt bílinn yfir tíma, líkt og gerist með snjallsíma.“
Ein af lykilforsendum þessarar nálgunar er að fyrirtækið þróar helstu tæknilausnir sínar sjálft. „Allt frá gervigreind og hugbúnaði til aksturskerfa og örflaga er þróað innanhúss,“ segir Kristinn. „Þannig er tryggt að tæknin virki sem ein samfelld heild.“

Upplifunin í forgrunni
Þróun samgangna snýst í dag um meira en að komast frá einum stað til annars. „Upplifunin á leið milli staða skiptir sífellt meira máli,“ segir Kristinn. „Við viljum að bílar XPENG verði framlenging af notandanum. Snjöll tæki á hjólum sem aðlagast þörfum ökumanns og gera hverja ferð bæði þægilegri og einfaldari.“
XPENG horfir einnig til framtíðar í víðara samhengi og vinnur að lausnum bæði á jörðu niðri og í lofti. Fyrirtækið er nú skráð á bæði New York Stock Exchange og Hong Kong Exchange og hefur vaxið hratt á undanförnum árum.
Þrjár gerðir á Íslandi
Vörulína XPENG á Íslandi samanstendur af þremur gerðum: G6, G9 og X9. Sameiginlegt með þeim öllum er að allir eru í boði fjórhjóladrifnir, með ríkulegum staðalbúnaði og háþróaðri tækni. X9, sem er 7 sæta lúxusbíll, er svo væntanlegur til landsins í sumar.
Einn sá bíll sem hefur vakið mikla athygli er XPENG G6, sem Kristinn segir vera meðal fullkomnari rafbíla í sínum flokki. „G6 sameinar tækni, kraft, góða drægni og ofurhraða hleðslu,“ segir hann. „WLTP drægni er allt að 535 kílómetrar.”
Hraðhleðslutæknin er einnig á meðal þess sem vekur athygli. „Við hraðhleðslu er hægt að hlaða rafhlöðuna úr 10% í 80% á um 12 mínútum, sem er besta hraðhleðslugeta bíls hér á landi“ segir Kristinn.

Rafbíll fyrir daglegt líf
Útfærslan XPENG G6 Performance er sérstaklega vel sniðin að daglegum akstri. „Þetta er nútímalegur rafbíll sem hentar mjög vel í daglegt líf,“ segir Kristinn. „Bíllinn er fjórhjóladrifinn með tvo rafmótora sem skila 660 Nm togi og 487 hestöflum .“
Hröðun úr 0–100 km/klst tekur 4,1 sekúndu og drægnin er allt að 535 km samkvæmt WLTP. Þá styður bíllinn hraðhleðslu allt að 451 kW/klst og er byggður á 800 volta 5C SEPA 2.0 rafkerfi og batterí sem eykur bæði skilvirkni og hleðsluhraða.
Tæknin í öndvegi
Tæknilausnir eru áberandi í XPENG-bílum. „Háþróuðu aksturs- og öryggiskerfi eru staðalbúnaður í öllum okkar bílum“ segir Kristinn. „XPILOT Assist 2.5 býður meðal annars upp á bílastæðaaðstoð, þannig að bílinn getur sjálfur lagt í stæði, akreinastýringu og sjálfvirka neyðarhemlun.“
Í innanrými bílsins er stór viðbragðsfljótur 15 tommu snertiskjár sem er notendavænn og þægilegur í notkun, með stuðningi við Apple CarPlay og Android Auto. Þá eru þægindi einnig í forgrunni með rúmgóðu farangursrými, stóru skotti og sæti með hita, kælingu og nuddi.
Framundan er hröð þróun og Kristinn telur ljóst að bílamarkaðurinn eigi eftir að breytast enn meira á næstu árum. „Rafvæðing, gervigreind og tækni eru að móta nýja kynslóð bíla,“ segir hann. „Við erum í raun bara að sjá upphafið að þeirri þróun núna.“