Vestmannaeyjar eru ekki fyrirferðarmiklar í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2026 og ekki meðal þeirra sveitarfélaga sem njóta sérstakrar velvildar í nýju fjárlögunum. Helstu beinu framlög til Eyja eru hófleg svo vægt sé til orða tekið.
Samkvæmt fylgigögnum með frumvarpinu fær sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum 3 milljónir króna í fjárfestingar. Um er að ræða stofnkostnað sem gæti farið í endurnýjun á aðstöðu eða stafrænar lausnir. Upphæð sem getur ekki skipt miklu í þjónustu eða starfsemi embættisins.
Á sama tíma vekur athygli að lögreglan í Vestmannaeyjum fær einungis um 100 þúsund krónur í sambærilegt fjárfestingarframlag. Til samanburðar fá önnur lögregluembætti á landinu frá tugum milljóna upp í yfir 200 milljónir króna. Þessi mikli munur hefur verið gagnrýndur í umsögnum um frumvarpið.
Í heild sinni eru Vestmannaeyjar úti í kuldanum í fjárlögum 2026. Engin stór innviðaverkefni og falla málefni Eyja fremur undir almennar aðgerðir ríkisins í samgöngum, heilbrigðisþjónustu og byggðamálum.
Þetta þýðir að áhersla ríkisins gagnvart Vestmannaeyjum felst fyrst og fremst í því að viðhalda núverandi þjónustu fremur en að ráðast í nýja uppbyggingu. Fyrir íbúa og atvinnulíf í Eyjum gæti það þýtt að áfram verði treyst á almennar landsbyggðaaðgerðir fremur en sértækar fjárfestingar sem taka mið af sérstöðu Eyjanna.
Eru sem sagt ekki í náðinni hjá núverandi ríkisstjórn.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.