Þessi tími – þegar samgöngurnar okkar í Landeyjahöfn eru í lamasessi – reynir þvílíkt á þolrifin og erum við öll sem hér búum löngu búin að “missa kúlið”. Sama ástandið er uppi á hverju ári af einfaldri ástæðu: höfnin er ekki tilbúin. Þetta er reyndar óvenju slæmt núna því höfnin hefur ekki opnað svona seint frá 2019 þegar nýi Herjólfur hóf siglingar.
Þetta þýðir stórlega skertar sjósamgöngur. Í stað 7 ferða eru 2 ferðir á dag, stöðugir biðlistar fyrir bíla og í svefnrými og mjög löng sigling. Ríkstjórn og þingmenn hafa, og hafa haft, valdið og bera ábyrgðina á að gera nauðsynlegar breytingar. Og þeim sem eiga að tryggja okkar samgöngur er fullljóst hvernig staðan er.
Ýmislegt hefur áunnist undanfarin ár þótt við munum alls ekki eftir því þegar staðan er eins og hún er núna. Margir hafa farið yfir það síðustu daga á samfélagsmiðlum hvernig þetta er að hafa áhrif á daglegt líf og þá þjónustu sem við þurfum að sækja annað. Þetta hefur einnig mikil áhrif á allt atvinnulíf og fyrirsjáanleikinn er enginn. Mér finnst löngu kominn tími á að ráðherrar og þingmenn stígi inn í þetta ástand af alvöru og vinni að því að tryggja okkur samgöngur sem virka allt árið. Það er löngu komið nóg af þessu ástandi. Það þarf að gera meira en að tala því að lífsgæði hjá heilu samfélagi eru undir.
Tillögur um breytingar á Landeyjahöfn eiga að liggja fyrir innan fárra vikna og þá reynir á vilja ríkistjórnar og Alþingis til framkvæmda.
Þegar þetta er skrifað er ég enn að bíða eftir svari frá innviðaráðuneytinu við því hvort að flugið verði framlengt, sem ætti auðvitað að vera sjálfsagt mál miðað við stöðuna.
Vestmannaeyjar eru dásamlegur staður en við Eyjamenn viljum og gerum kröfur um eðlilegar samgöngur eins og aðrir landsmenn.