Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum.

Nafn: Hannes Kristinn Sigurðsson

Aldur: 41 árs

Fjölskylda: Giftur Fanney Finnbogadóttur og eigum tvo drengi, Elías Agnar Hannesson (2014) Eyvar Bogi Hannesson (2021).

Menntun og störf: Innkaupastjóri.

Fyrri afskipti af stjórnmálum:

Ég tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir fjórum árum og hef síðan þá setið sem aðalmaður í Framkvæmda- og hafnarráði, nú síðast sem varaformaður.

Ég hef jafnframt verið virkur í starfi flokksins frá árinu 2011, þegar ég tók sæti í stjórn Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Í dag sit ég í stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins og hef gegnt ýmsum trúnaðarstörfum á vettvangi flokksins

Af hverju Sjálfstæðisflokkurinn?

Að mínu mati eru það grunngildin, að trúa á frelsi einstaklingsins og ábyrgðina sem því fylgir. Sú trú hefur mótað mína sýn og verið leiðarljós í minni þátttöku í stjórnmálum.

Ég trúi á skoðanaskipti, samvinnu og það að vinna saman að betri Vestmannaeyjum.

Brýnustu verkefni:

Fjölmörg mikilvæg mál liggja fyrir sem varða hagsmuni sveitarfélagsins og hefðu að mörgu leyti mátt fá betri úrlausn á undanförnum árum.

Sem dæmi má nefna að fyrir liggur vilji ríkisins til að endurskoða rekstrarsamning um Herjólf með það að markmiði að draga úr framlagi. Slík breyting gæti haft í för með sér þjónustuskerðingu sem myndi beinlínis bitna á íbúum og atvinnulífi.

Í samgönguáætlun sem nú liggur fyrir Alþingi eru jafnframt verkefni á borð við endurbætur á ekjubrú Herjólfs sett langt fram í tímann, eða til ársins 2029, þrátt fyrir brýna þörf fyrir úrbætur.

Þá er nýr lóðs enn ekki á dagskrá og mætti nefna fleiri dæmi um verkefni sem hafa setið á hakanum.

Að mínu mati er þó eitt verkefni brýnna en önnur, að hrinda í framkvæmd áætlun um stórskipahöfn við Eiðið. Slík uppbygging myndi hafa grundvallaráhrif á starfsskilyrði útflutningsfyrirtækja og styrkja innviði atvinnulífsins til framtíðar.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á:

Eðlilega liggur hugur minn mest til málefna Framkvæmda- og hafnarráðs, þar sem ég hef starfað síðustu fjögur ár. Eins og ég hef komið að hér að ofan tel ég að þar liggi mörg af brýnustu verkefnum sveitarfélagsins.

Í Vestmannaeyjum starfa tvö af stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins, auk Laxeyjar sem er í hraðri uppbyggingu. Útflutningur er ein af meginstoðum atvinnulífsins og þörfin fyrir öfluga stórskipahöfn hefur sjaldan verið meiri en einmitt nú.

Þá eru fram undan fjölmörg spennandi verkefni, ekki síst tengd uppbyggingu Laxeyjar, sem kalla á aukna hafnargetu og móttöku stærri skipa til Vestmannaeyja.

Það væri hægt að fara ítarlega yfir fjölmörg tækifæri og áskoranir, en ljóst er að við getum gert betur og að skýr forgangsröðun er lykillinn að áframhaldandi uppbyggingu og árangri.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja:

Ég sé Vestmannaeyjar fyrir mér eins og við flest gerum að ég held. Fagurgræna eyju sem blómstrar af öflugu mannlífi og fjölbreyttu atvinnulífi.

Fram undan sé ég uppbyggingu lykilinnviða á borð við göng til landsins og stórskipahöfn, ásamt markvissri fjölgun íbúa þar sem íbúafjöldi gæti náð 6–8 þúsund manns.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins:

Svarið er einfalt: Ég mæti. Ég tek þátt í starfinu og legg mig allan fram í þau verkefni sem þarf að takast á við, bæði stór og smá. Ég er liðsfélagi sem vinnur vel með öðrum og er alltaf tilbúinn til að ræða málin og leita lausna.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Líklega verð ég að segja markviss uppbygging innviða sveitarfélagsins sé lykillin að velferð framtíðarinar.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.