Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Herjólfur á leið til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Í tilkynningu frá bæjaryfirvöldum í Vestmannaeyjum er ástand samgangna við Eyjar sagt óboðlegt og varað við að stefni í neyðarástand.

Fram kemur að Landeyjahöfn sé enn lokuð um miðjan apríl og lítið gangi við dýpkun. Nýjustu mælingar sýni slæma stöðu og óvíst sé hvenær hægt verði að opna höfnina. Dýpkunarskipið Álfsnesið hafi hætt störfum í hafnarmynninu og haldið til Þorlákshafnar þar sem aðstæður reyndust erfiðar.

Jafnframt er bent á að Herjólfur sé bilaður og sigli einungis á annarri skrúfu. Siglingar til Þorlákshafnar geti tekið allt að fjórar klukkustundir og séu háðar veðri, með hættu á kyrrsetningu í vondum aðstæðum.

Samkvæmt tilkynningunni hefur þetta leitt til verulega skertra samgangna, þar sem ferðum hefur fækkað úr sjö á dag í tvær. Biðlistar hafi myndast og flutningar raskast verulega, með áhrifum á atvinnulíf og ferðaþjónustu.

Krefjast tafarlausra úrbóta

Bæjaryfirvöld setja fram þrjár megin kröfur:

  • Að Vegagerðin kanni hvort hægt sé að fá erlenda aðila, svo sem Jan de Nul, til að flýta dýpkun og opnun hafnarinnar
  • Að flugsamgöngur verði auknar á meðan siglt er til Þorlákshafnar
  • Að sett verði fram viðbragðsáætlun ef Herjólfur getur ekki sinnt siglingum

Óskað hefur verið eftir fundi með stjórnvöldum sem fyrst.

Ekki hefur enn borist formlegt svar við erindinu, en fundur með Vegagerðinni og vegamálastjóra er fyrirhugaður á mánudag.

Nýjustu fréttir

Ný almannavarnalögn gjörbreytir öryggi Vestmannaeyja
Makrílvertíðin að hefjast
Friðrik hleypur fyrir Guðbjörgu Sillu
Sara Björk heldur á vit nýrra ævintýra á Akureyri 
Aflaheimildir til strandveiða auknar um 964 tonn
Andlát: Kristinn Viðar Pálsson
Endi nýju vatnsleiðslunnar kominn í land
147 komu á heilsugæsluna og í sjúkraskýlið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.