Kvennalið ÍBV í handbolta vann gríðarlega mikilvægan sigur á Haukum, í 8-liða úrslita einvíginu milli þessar liða í úrslitakeppni Olís deildar kvenna, í dag. Þetta var annar leikurinn í einvíginu og er staðan nú 1-1. Þrjá sigra þarf til að komast í undanúrslit.
Fyrri hálfleikurinn var jafn framan af og var staðan 9-9 eftir átján mínútna leik. Hauka stelpur tóku að skríða fram úr Eyjakonum í lok fyrri hálfleiks og voru yfir tveimur til þremur mörkum fram að hálfleik. Haukar leiddu með þremur mörkum, 16-13, í hálfleik.
Haukar náðu fjögurra marka forystu, 18-14, á upphafs mínútum síðari hálfleiks og náðu svo sex marka forskoti stuttu síðar. Þegar stundarfjórðungur var eftir leiddu Haukar 23-20. Eyjakonur minnkuðu muninn í eitt mark, 25-24, þegar níu mínútur voru til leiksloka.
Lokamínútur leiksins voru gríðarlega spennandi og var allt í járnum. Þegar tæp mínúta var eftir var staðan jöfn 28-28 og Haukar gátu komist yfir en Amalia Frøland varði. Það var svo Kristrún Ósk Hlynsdóttir sem skoraði lokamark leiksins og ÍBV vann frábæran eins marks sigur. Lokatölur leiksins 28-29.
Birna Berg Haraldsdóttir fór á kostum í liði ÍBV og var markahæst með 16 mörk. Amalia Frøland varði 11 skot í marki ÍBV og reyndist gríðarlega mikilvæg á lokamínútum leiksins. Ólöf Maren Bjarnadóttir varði tvö skot.
Mörk ÍBV: Birna Berg Haraldsdóttir 16 mörk, Sandra Erlingsdóttir 3, Agnes Lilja Styrmisdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Britney Emilie Florianna Cots 2, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 2, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 1, Ásdís Halla Hjarðar 1.
ÍBV tekur á móti Haukum heima í Eyjum í þriðja leik liðanna, miðvikudaginn 22. apríl kl. 18:30.