Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Vörumessan var haldin í Smáralind.

Á föstudag og laugardag fór fram svokölluð vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind. Þar kynntu og seldu nemendur úr framhaldsskólum víðs vegar af landinu hugmyndir sínar og verkefni. En alls tóku um 620 nemendur frá 18 framhaldsskólum þátt í messunni. 

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum átti þar sex hópa sem kynntu sína nýsköpun. Nemendur lögðu mikla vinnu í verkefnin og fengu tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri fyir gesti og gangandi.

Markmið vörumessunnar er að efla frumkvöðlahugsun meðal ungs fólks, auka skilning á rekstri og gefa nemendum raunverulega reynslu af því að þróa og kynna eigin vörur.

Hóparnir frá Eyjum voru með ýmsar vörur svo sem konfekt, litabækur um Vestmannaeyjar, handboltaspjöld fyrir Olísdeildina, bækur fyrir krakka, drykki, ásamt efni til að efla íslenskt málfar.

Eyjafréttir voru á staðnum og smellti myndum af hópunum frá Eyjum.

 

Nýjustu fréttir

Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum
Höfum áhrif – Framtíðin er í okkar höndum
Sex hópar frá FÍV tóku þátt í vörumessu í Smáralind
Spurt og svarað: Hannes Kristinn frá Sjálfstæðisflokknum
HSU: Gervigreind styður við myndgreiningu og bráðaþjónustu
ÍBV kom til baka og vann frábæran sigur gegn Haukum
Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.