Enn er þess beðið að Landeyjahöfn opni fyrir áætlunarsiglingar. Að sögn G. Péturs Matthíassonar hefur dýpkun í Landeyjahöfn gengið erfiðlega undanfarna daga.
Ástæðan er sú að alda um helgina reyndist mun hærri en spár gerðu ráð fyrir, sem takmarkaði möguleika á dýpkun og varð til þess að árangur varð minni en vonast var eftir.
Ólíklegt þykir að dýpkunarskipið Álfsnesið nái miklum árangri á kvöldflóði í dag nema aldan lækki hratt. Hins vegar eru jákvæðar fréttir framundan, en útlit er fyrir góðar aðstæður til dýpkunar frá þriðjudegi og fram á föstudag, segir Pétur í skeyti til Eyjafrétta.
Ferjan Baldur hóf siglingar á milli lands og Eyja í gærkvöldi og mun halda uppi áætlun þar til annað kvöld. Herjólfur fer aftur í áætlun á miðvikudagsmorgun, en mun áfram sigla á annari skrúfunni þar til rafmótor sem nú er verið að taka til viðgerðar verður kominn aftur í ferjuna.