Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og Oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vm.

Aðsend grein

Eyþór Harðarso

Baráttan um atkvæði Eyjamanna er komin á fulla ferð eftir að þrír stjórnmálaflokkar  tilkynntu framboð til kjörstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er þar á meðal og markmiðið okkar sjálfstæðismanna er bara eitt:  Að vinna meirihluta í kosningunum 16.maí.

Ný vatnslögn

Ég hef starfað í bæjarstjórn sl. 4 ár, sem oddviti Sjálfstæðismanna , og hef setið í Bæjarráði, þar sem hagsmunagæslan er mest krefjandi. Fyrir fjórum árum settum við Sjálfstæðismenn fram sem okkar baráttumál að leggja nýja vatnslögn milli lands og Eyja. Ekki óraði mig fyrir að það einstaka mál yrði eins fyrirferðarmikið eins og kom á daginn.

Ég hef starfað í svokölluðum vatnshóp, sem myndaður var í byrjun kjörtímabilsins og það er gleðiefni að gengið hefur verið frá kaupum og lagningu nýrrar vatnslagnar á komandi sumri. Algjör samstaða var um þetta verkefni hjá öllum í bæjarstjórn og það er örugglega lykillinn að því að þetta mál er komið á þennan stað.

Vatnslögnin er almannavarnamál

Bæjarráð hefur fylgt því fast á eftir, við ríkið, að um 3ja milljarða kostnaður við vatnslögnina verði viðurkenndur sem almannavarnamál. Verði það viðurkennt mun kostnaðurinn við lögnina verða greiddur af ríkinu. Ríkið hefur nú þegar samþykkt 800 milljónir til verkefnisins og var það samþykkt af síðustu ríkisstjórn 2023.

Með ríkisstjórnarskiptum á síðasta ári má segja að fjármögnunarverkefnið hafi þurft að hefjast uppá nýtt með nýjum ráðherrum og þess vegna dregist á langinn. Það er von okkar sem höfum fylgt þessu verkefni eftir undanfarin ár, að það sé raunhæft markmið að ríkið viðurkenni verkefnið sem almannavarnarmál. Sú vinna sem hefur verið unnin til þess að sá árangur náist er mikil og ég tel mikilvægt að fólk með þekkingu og reynslu fylgi því máli eftir áfram. Ég fullyrði að þetta er  eitt stærsta hagsmunamál íbúa í Vestmannaeyjum í  mjög langan tíma.

Orkuskiptin – Nýir sæstrengir

Á stefnuskrá okkar Sjálfstæðismanna í síðustu kosningum var baráttan fyrir nýjum sæstreng milli lands og Eyja. Á þeim tíma var einn strengur komin á framkvæmdaáætlun Landsnets, en ekkert í hendi að framkvæmdin væri tryggð. Strax var hafist handa við að knýja á framgang verkefnisins í ljósi þess að atvinnulífið í Vestmannaeyjum gat ekki farið í orkuskiptin nema flutningsgeta raforku til Eyja yrði bætt.

Það voru því ánægjulegar fréttir þegar Landsnet tilkynnti ákvörðun um lagningu tveggja sæstrengja. Aðkoma Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þáverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, hafði mikil áhrif á góða niðurstöðu þessa máls. Sæstrengirnir voru lagðir sumarið 2025 og eru komnir í gagnið í dag.

Sjálfstæðisflokkurinn er traustsins verður 

Þessi stutta samantekt sýnir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins berjast  alltaf fyrir hagsmunum Eyjamanna. Það gerðum við svo sannarlega sl. kjörtímabil , þótt við værum í minnihluta. Gott samstarf hefur skilað okkur trausti og því berum við vonir í brjóstum okkar og höfum  góða tilfinningu fyrir góðum árangri í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Áfram Vestmannaeyjar

 

Eyþór Harðarson, bæjarfulltrúi og oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Vm.

Nýjustu fréttir

Alvarleg staða samgöngumála: Kallað eftir tafarlausum aðgerðum
Eldsneytisvandi í Eyjum
Segir þingmenn tala öðruvísi í Eyjum en í Reykjavík
Emil Gautason í lokahóp u-16
Vatnslögnin er stærsta hagsmunamál íbúa í Eyjum 
Fyrstu borsýni komin upp úr jörðu
Dýpkun gekk ágætlega í gærkvöldi
Öflugur rekstur lykilatriði

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.