Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur hafnað beiðni um breytingu á byggingarleyfi við Strandveg 45A.
Málinu var vísað til ráðsins frá 79. fundi byggingarfulltrúa, þar sem Björgvin Björgvinsson, fyrir hönd eiganda fasteignarinnar, lagði fram uppfærðan aðaluppdrátt. Helsta breytingin fólst í stækkun á rampi fyrir framan húsið. Samkvæmt nýjum teikningum átti rampurinn að ná 1,4 metra út fyrir byggingarreit, en áður hafði verið samþykkt að hann næði 1,0 metra út fyrir reitinn.
Ráðið féllst ekki á breytinguna. Í niðurstöðu þess kemur fram að stækkunin gangi umfram heimildir, þar sem rampurinn fyrir hreyfihamlaða myndi ná 0,4 metra út fyrir það svæði sem áður hafði verið samþykkt til afnota af bæjarlandi.
Eiganda er því gert að draga úr breidd rampsins svo hann falli innan þeirra marka sem áður hafa verið samþykkt.
