Dýpkun í Landeyjahöfn hefur gengið ágætlega í síðasta dýpkunarglugga, en aðstæður versnuðu í gær þegar sjólag þyngdist. Þetta kemur fram í upplýsingum frá G. Pétri Matthíassyni, forstöðumanni samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
„Dýpkun hefur gengið ágætlega í þessum síðasta glugga. Í gær versnuðu aðstæður þegar ölduhæð jókst og öldulengd fór í um 85 metra, sem gerði vinnuna töluvert erfiðari,“ segir Pétur.
Horfur eru þó betri til skamms tíma og gæti skapast tækifæri til áframhaldandi vinnu í dag.
„Útlit er betra í dag á hádegisflóðinu,“ segir Pétur. Þrátt fyrir það er spáð vaxandi ölduhæð um helgina og inn í næstu viku, sem gæti aftur haft áhrif á framgang dýpkunar.