Vonbrigði með dýpkun
Landeyjahöfn. Eyjafréttir /Eyjar.net: TMS

Nýjar dýptarmælingar við Landeyjahöfn sýna að árangur dýpkunar er minni en vonast var til og vantar enn talsvert upp á að ná nægilegu dýpi í hafnarmynninu.

„Þetta eru vægast sagt vonbrigði að dýpið sé ekki orðið meira en raun ber vitni,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í samtali við Eyjafréttir.

Samkvæmt mælingum hefur dýpið þó aukist úr um -1,9 metrum í um -2,7 metra og flatarmál skaflsins minnkað, en það dugar ekki enn til.

„Það vantar enn talsvert upp á að ná skaflinum niður í nægilegt dýpi,“ segir Pétur. Áform eru um að reyna dýpkun á flóðinu í kvöld og aftur á sunnudag, en aðstæður eru erfiðar og óvissa mikil.

„Báðir þessir gluggar eru við erfiðar aðstæður,“ segir hann. Veðurspár gera ráð fyrir lægð frá mánudegi fram á föstudag og því lítið svigrúm til vinnu á þeim tíma.

„Það verður nánast ekkert vinnuveður og miðað við spána gerum við ráð fyrir að hefja dýpkun aftur síðdegis föstudaginn 1. maí,“ segir Pétur.

Samhliða er verið að skoða að nýta skipið Sóley til að blása á skaflinn innan frá, en sú leið er ekki áhættulaus.

„Þetta er töluvert áhættusamt og einhverjar líkur á tjóni á skipinu. Við erum að meta þetta með skipstjórum hvort þetta sé raunhæft,“ segir Pétur. Að hans sögn ráða veður og sjólag áfram ferðinni.  „Veðuröflin eru lítið að vinna með okkur.“

Nýjustu fréttir

Vonbrigði með dýpkun
Framtíðarsýn og faglegt samstarf við uppbyggingu Íþróttamiðstöðvarinnar
Líf og fjör á barnamenningarháíð
Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma
Halla Hrund óskar eftir opnum fundi um stöðu samgangna til Vestmannaeyja
15 ára stelpa úr Eyjum misst 12 daga úr skóla
Aðstæður versnuðu í gær – gluggi í dag
Innviðaráðherra svarar bæjarráði
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.