Herjólfur og Baldur báðir í áætlun á morgun
Herjólfur á leið í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Vegagerðin, Herjólfur ohf. og bæjaryfirvöld hafa unnið að því síðasta sólarhring að tryggja betri samgöngur til/frá Vestmannaeyjum og var tilkynning send út í gærkvöldi að innviðarráðherra hefði samþykkt að Baldur muni koma til Eyja um helgina og sinna siglingum ásamt Herjólfi milli lands og Eyja.

Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að mikið sé bókað og ljóst sé að þörf er á meiri flutningsgetu en Herjólfur hefur afkastað á einni skrúfu. Stefnt er að mælingu í Landeyjahöfn seinnipartinn í dag fimmtudag eða að morgni föstudags.

Siglingaáætlun föstudaginn 1.maí er sem hér segir:

Herjólfur IV
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 11:15 og 20:00

Baldur
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:30 og 16:30
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 11:00 og 19:45
*Farþegar sem eiga bókað í Baldur kl. 11:00 og 19:45 eru beðnir um að fara ekki í bílaröðina fyrr en búið e að lesta Herjólf.

Hvað varðar siglingar á laugardag og sunnudag, þá mun Herjólfur gefa út siglingaáætlun ferjanna þegar niðurstöður dýptarmælinga liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Herjólfur og Baldur báðir í áætlun á morgun
Frábær árangur FÍV – Eyjakonfekt til Tromsø
Íþróttamaður mánaðarins – Helgi Ólafsson
Baldur á leið til Eyja
Ekki brotna! Fræðsla og forvarnir um beinheilsu
Margrét aðstoðar Miðflokkinn
Herrakvöld fótboltans
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.