Samkvæmt upplýsingum frá Sýslumannsembættinu hafa alls 96 kjósendur í Vestmannaeyjum greitt atkvæði utan kjörfundar frá því hún hófst 17. apríl síðastliðinn. Tölurnar miðast við stöðuna í gær, 30. apríl 2026.
Á kjörskrá í Vestmannaeyjum eru nú um 3.540 kjósendur. Sú tala byggir á lögheimili kjósenda á viðmiðunardegi, 8. apríl 2026, samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár.
Þegar horft er til fyrri bæjarstjórnakosninga má sjá að kjósendum hefur fjölgað á síðustu árum. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022 voru um 3.284 kjósendur á kjörskrá í Vestmannaeyjum og 3.162 árið 2018. Kjörsókn 2022 var 80,9% og 83,2% árið 2018.
Ekki liggja fyrir samanburðartölur um hversu margir höfðu kosið utan kjörfundar á sama tíma fyrir kosningarnar 2022 en ljóst er að kosningabaráttan fer hægt af stað en kosið verður 16. þessa mánaðar.