Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Guðný Geirsdóttir. Mynd/ÍBV knattspyrna

Markvörður ÍBV, Guðný Geirsdóttir, hefur framlengt samningi sínum við félagið um tvö ár og mun standa í markinu hjá ÍBV út tímabilið 2027. ÍBV greindi frá á samfélagsmiðlum sínum.

Í tilkynningunni segir ,,Guðný hóf feril sinn hjá ÍBV aðeins fjögurra ára gömul. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV árið 2016 í efstu deild. Hennar tími kom árið 2018 þegar hún festi sig í sessi sem aðalmarkvörður liðsins. Eftir farsælan lánssamning til Selfoss fyrri hluta árs 2021, þar sem hún öðlaðist mikla reynslu, snéri hún aftur til ÍBV í júlí 2021 til að styrkja stöðu sína sem áreiðanlegur og stöðugur leikmaður. 

Guðný er 29 ára gömul og hefur verið lykilmaður í ÍBV í nokkur ár. Hún spilaði samtals 27 leiki á síðasta tímabili, þar sem liðið vann flesta sína leiki og tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Hún var valin leikmaður ársins hjá félaginu árið 2023.

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.