Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Þóra Guðný og Jason frá Sjálfstæðisflokknum

Íþróttir skipa stóran sess í samfélagi okkar í Vestmannaeyjum. Þær efla ekki aðeins líkamlega heilsu heldur einnig félagsfærni, samvinnu og seiglu, þætti sem skipta sköpum í uppvexti barna og ungmenna. Við eigum að vera stolt af því öfluga íþróttastarfi sem hér hefur verið byggt upp, en á sama tíma þurfum við að horfa fram á veginn og spyrja: hvernig getum við gert enn betur?

Styðjum við aukna fjölbreytni

Fyrsta skrefið er að styðja við aukna fjölbreytni í íþróttum. Börn eru ólík og það hentar ekki öllum að stunda sömu íþróttir. Með því að styðja breiðara úrval af íþróttum aukum við líkurnar á því að hvert barn finni sína hillu og haldi áfram að hreyfa sig eða hafi áhugamál til lengri tíma. Fjölbreytni dregur úr brottfalli og styrkir íþróttalífið í heild.

Markvisst samstarf nauðsynlegt

Aðstaða skiptir þar lykilmáli. Við þurfum að tryggja að íþróttamannvirki séu vel skipulögð og nýtist sem best. Það gerum við með markvissu samstarfi við íþróttafélög, þjálfara og starfsfólk mannvirkja, þá sem þekkja daglegt starf best. Með sameiginlegri sýn getum við skapað umhverfi sem styður við metnaðarfullt starf og góða nýtingu fjármuna.

Jöfn tækifæri fyrir alla

Við verðum einnig að tryggja að allir hafi raunverulegt aðgengi að íþróttum. Það á jafnt við um fatlaða iðkendur og yngstu börnin okkar. Að efla hreyfingu barna á leikskólaaldri er mikilvæg fjárfesting í framtíðinni, þar sem grunnur að heilbrigðum lífsstíl er lagður snemma. Jafnframt þarf að styðja betur við íþróttastarf og hreyfingu fyrir fatlaða svo allir hafi jöfn tækifæri til þátttöku.

Skýr framtíðarsýn og sameiginleg markmið

Sterk samvinna milli bæjarins og íþróttafélaga er forsenda árangurs. Við þurfum skýra framtíðarsýn og sameiginleg markmið um hvernig við viljum þróa íþróttalífið til framtíðar. Þar skiptir einnig máli að hækka frístundastyrk til að létta undir með fjölskyldum og tryggja að kostnaður standi ekki í vegi fyrir þátttöku barna.

Gerum Eyjar að fyrirmynd í íþróttamálum

Með því að leggja áherslu á fjölbreytni, góða aðstöðu, aðgengi fyrir alla og öfluga samvinnu getum við gert Vestmannaeyjar að enn frekari fyrirmynd í íþróttamálum. Það er verkefni sem við eigum að taka höndum saman um, fyrir börnin okkar og framtíð samfélagsins.

Við erum Sterkari saman!

Þóra Guðný Arnarsdóttir skipar 12. sæti á lista Sjálfstæðisflokks.

Jason Stefánsson skipar 17. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Sterkara íþróttasamfélag fyrir alla
Frábær endurkomusigur ÍBV gegn Víkingi
Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskis virði?
Krefjandi aðstæður við borun
Jóný bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2026
Guðný Geirsdóttir hjá ÍBV út 2027
Góð stemmning á herrakvöldi fótboltans
Í gær höfðu 96 kosið utan kjörfundar í Vestmannaeyjum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.