Vöndum okkur! 
Átta ár Eyjalistans í meirihluta 
Mynd/TMS
Hildur Róbertsdóttir

Aðsend grein

Hildur Róbertsdóttir

Núna þegar tvær vikur eru til sveitarstjórnarkosninga tel ég mikilvægt að líta yfir farinn veg og tek ég bæjarfulltrúa Helgu Jóhönnu Harðardóttur þar til fyrirmyndar en hún gerði slíkt hið sama á sínum síðasta bæjarstjórnarfundi fyrir Eyjalistann á dögunum. Eyjalistinn hefur skipað meirihluta með Bæjarmálafélaginu Fyrir Heimaey sl. átta ár og hefur samstarfið einkennst af virðingu, samvinnu og samheldni. Það má einnig segja að samstarf bæjarstjórnar allrar hafi einkennst af sömu þáttum. Það þýðir ekki að einstaklingar séu alltaf sammála eða segi ekki sína skoðun. Þvert á móti þá tel ég bæjarstjórn alla hafa átt í uppbyggilegu samtali og komist nær alltaf að niðurstöðu sem er Vestmannaeyjum í hag.

Lítum yfir farinn veg 

Lítum nú yfir farinn veg… á þeim átta árum sem Eyjalistinn hefur verið í meirihluta hafa ótal mörg verkefni komist af stað eða verið kláruð. Þar vil ég sérstaklega nefna þróunarverkefnið “Kveikjum neistann” en verkefnið hefur verið lyftistöng fyrir menntasamfélagið sem Vestmannaeyjar er. Nemendum líður betur í skólanum og mikil ánægja er með ástríðutíma í lok dags. Annað verkefni sem ég ætla að nefna er stuðningur bæjarins við heilsueflingu eldri kynslóðarinnar með tilkomu Janusar verkefnisins. Verkefnið hefur reynst hópnum vel og er stöðug aðsókn í þjónustuna og niðurstöður mælinga jákvæðar. Þriðja verkefnið sem ég tel mjög vel heppnað er uppbygging á Vigtartorgi en það hefur sýnt sig vera skemmtilegur vettvangur fyrir ýmsa viðburði og að auki er leiksvæðið til fyrirmyndar með leiktæki fyrir breiðann aldur barna. Fjórða og síðasta verkefnið sem verður nefnt hér, í bili, eru búningsklefar og gervigrasið á Hásteinsvelli og komandi flóðlýsing. Uppbyggingin á aðstöðunni er til fyrirmyndar fyrir leikmenn á öllum aldri.

Uppbygging gerist ekki í tómarúmi

Þessi upptalning gæti verið töluvert lengri en hér ætla ég að stoppa og segja ykkur frekar frá því hvað þessi verkefni eiga sameiginlegt. Þessi verkefni eiga það öll sameiginlegt að þau gerast ekki í tómarúmi, uppbygging innviða gerist ekki án áætlana og vinnu starfsfólks Vestmannaeyjabæjar. Mér blöskrar því að sjá og heyra þegar lítið er gert úr vinnu starfsfólks bæjarins sem vinna ötullega að þeim málefnum sem kjörnir fulltrúa samþykkja í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Tölum vel um vinnu annarra og gerum ekki lítið úr verkum til að upphefja okkur sjálf. Verum málefnaleg og komum með lausnir í stað lítillækkunar!

 

Hildur Róbertsdóttir

Höfundur er varabæjarfulltrúi og skipar 4.sæti á lista Eyjalistans fyrir komandi kosningar.

Nýjustu fréttir

Vöndum okkur! 
Ósigraðir Blikar koma til Eyja – ÍBV leitar að fyrsta sigrinum
Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
Dýpkun gekk vel í morgun
Sjálfstæðisflokkur stærstur í Suðurkjördæmi
Góð stemning á fjölskyldudegi á Stakkagerðistúni
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.