Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra inn í listaverkinu. Ljósmyndir/Halldór B. Halldórsson

Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra vígði í dag fyrsta áfanga Sjónarhorns flakkarans, listaverks Ólafs Elíassonar. Athöfnin fór fram við útsýnisskála sem staðsettur er í nýja hrauninu og við Eldfell sem myndaðist í eldgosinu árið 1973. Verkið samanstendur af útsýnisskálanum og göngustíg sem liggur um hraunið og umhverfis Eldfell.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Auk ráðherra fluttu þeir Ólafur Elíasson höfundur verksins og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar ávörp.

Í apríl sl. veitti ráðherra styrk til verkefnisins úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og var það hæsti styrkurinn sem úthlutað var úr sjóðnum fyrir árið 2026. Styrkurinn fjármagnar að fullu lagningu göngustígsins sem er annar hluti verkefnisins.

Stígurinn fer um sömu leið og svonefndur Flakkari fór 1973, stór hraunfylla sem brotnaði úr Eldfelli í gosinu og rann með hraunstraumnum í átt að innsiglingunni. Óttast var að Flakkarinn, ásamt öðru hraunflæði, myndi loka innsiglingunni og ógna með því grundvelli byggðar í Heimaey. Flakkarinn flaut ofan á glóandi hrauninu áður en hann var stöðvaður með hraunkælingunni sem var byltingarkennd aðferð á þeim tíma. Köldum sjó og vatni var veitt í stórum stíl yfir hraunið sem dugði til að hægja á framrás hraunsins og bjarga innsiglingunni í Vestmannaeyjahöfn.

„Sem ráðherra ferðamála þykir mér sérstaklega ánægjulegt að sjá þetta listaverk verða að veruleika. Náttúra, saga og menning Vestmanneyja eru seglar fyrir bæði Íslendinga og erlenda ferðamenn, og ég veit að þetta verk mun svo sannarlega auka á það aðdráttarafl sem Vestmannaeyjar hafa. Ég hlakka til að sjá lokaútkomuna, þegar göngustígurinn verður tilbúinn, og þetta einstaka listaverk verður tekið í notkun í allri sinni dýrð,“ er haft eftir atvinnuvegaráðherra í tilkynningunni.

Myndband frá dagskránni í Safnahúsinu má sjá hér að neðan.

Ólafur Elíasson.
Play Video

Nýjustu fréttir

Valskonur urðu Íslandsmeistarar í Eyjum eftir sigur á ÍBV
Sjónarhorn flakkarans vígt í hrauninu við Eldfell
Tafir á haffærniskírteini Herjólfs III
Fjör, gleði og glæsileg skemmtun á árshátíð VSV
Forsendur þess að fjölskyldur blómstri
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Þingnefnd boðar opinn fund um stöðu samgangna til Eyja
Hákon Már Örvarsson gestakokkur á GOTT
viðburðir
Oddvitar 2026 Samsett
14. maí 2026
17:00
Opinn framboðsfundur Eyjafrétta í Eldheimum
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.