Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Peninga
Rúmlega 336 milljóna króna EuroJackpot-vinningur kom til Íslands um síðustu helgi. Vinningshafarnir hafa ákveðið að deila gleðinni með börnum sínum og barnabörnum.

Það hefur verið líf og fjör hjá Íslenskri getspá í vikunni, enda hafa vinningshafar lagt leið sína á skrifstofu Getspár eftir stóra vinninga sem féllu um síðustu helgi. Á föstudagskvöldið kom 2. vinningur í EuroJackpot til Íslands, rúmar 336 milljónir króna. Vinningshafarnir eru eldri hjón sem keyptu miðann sinn hjá N1 við Austurveg á Selfossi.

Maðurinn fór sjálfur yfir miðann eftir að hafa heyrt að 2. vinningur hefði komið til landsins. Þegar hann sagði eiginkonu sinni frá vinningnum trúði hún honum ekki í fyrstu og var sannfærð um að hann væri einfaldlega að grínast.

Hjónin sögðust þegar telja sig rík, enda eiga þau bæði mörg börn og enn fleiri barnabörn og lögðu áherslu á að það skipti þau mestu máli. Þau sögðust strax hafa ákveðið að deila gleðinni með sínum nánustu, enda gæfi það þeim enn meira að sjá börnin og barnabörnin njóta góðs af vinningnum.

Barnabörnin eru ýmist að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði eða í námi, og því mun vinningurinn skipta sköpum fyrir marga í fjölskyldunni.

Vinningur sem kom á fullkomnum tíma

Fyrsti vinningur í Lottó gekk út síðastliðinn laugardag þegar potturinn var einfaldur og nam vinningurinn rúmum 11 milljónum króna.

Vinningshafinn er ung kona rétt um þrítugt sem er með miðann sinn í áskrift. Hún er í fæðingarorlofi og sagði að vinningurinn hefði ekki getað komið á betri tíma og að hann myndi skipta miklu máli fyrir fjölskylduna.

Stutt er á milli barna hjá henni og því ekki langt síðan hún var síðast í fæðingarorlofi. Hún segir vinninginn muni gera þeim kleift að anda léttar og skapa meira svigrúm á þessum krefjandi en dýrmæta tíma í lífinu.

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið fyrir veittan stuðning – sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó, segir í tilkynningu frá Íslenskri Getspá.

Nýjustu fréttir

Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Aldursmörk fyrir læknisvottorð hækka úr 65 í 75 ár
Vel heppnað söngkvöld og aðalfundur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.