Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
Úr leik ÍBV og Þór/KA á Hásteinsvelli. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna lýkur í dag þegar fjórir leikir fara fram samtímis klukkan 14:00. Athygli Eyjamanna beinist að leik Stjörnunnar og ÍBV á Samsungvellinum í Garðabæ.

ÍBV hefur farið vel af stað í sumar og situr í 3. sæti deildarinnar með 13 stig eftir sex leiki, jafnmörg stig og FH sem er í öðru sæti. Aðeins Breiðablik er fyrir ofan með 15 stig. Með sigri á Stjörnunni gætu Eyjakonur því komið sér í toppbaráttuna af fullum krafti og jafnvel endað umferðina á toppnum ef úrslit annarra leikja falla þeim í hag.

Þrátt fyrir að hafa aðeins fengið eitt stig úr síðasta leik, þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við Grindavík/Njarðvík á Hásteinsvelli, er staða Eyjakvenna afar sterk þegar þriðjungur mótsins er að baki. Stjarnan er í 5. sæti með átta stig eftir sex leiki. Garðabæjarliðið hefur unnið tvo leiki, gert tvö jafntefli og tapað tveimur.

ÍBV verður án Olgu Sevcova sem tekur út fyrri leikinn af tveggja leikja banni sem aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði hana í fyrr í vikunni. Það verður því áhugavert að sjá hvernig ÍBV bregst við þeim forföllum gegn sterku liði Stjörnunnar á útivelli.

Staðan fyrir leiki dagsins

Fyrir leiki dagsins er staðan þannig í efri hlutanum:

Lið Stig
Breiðablik 15
FH 13
ÍBV 13
Þróttur R. 12*
Stjarnan 8

* Þróttur hefur lokið leik í umferðinni.

Leikir dagsins (kl. 14:00)

  • Grindavík/Njarðvík – Breiðablik
  • FH – Fram
  • Þór/KA – Víkingur R.
  • Stjarnan – ÍBV

Nýjustu fréttir

Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Stuttir túrar skiluðu góðum afla
Loðnan skilaði sjómönnum milljónum á fáeinum vikum
Fólk hvatt til að tryggja sér miða í forsölu
Ekkert gert í átta ár í Landeyjahöfn en nú er hlaupið til
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.