Skólanum slitið á Stakkó
Grunnskólanum var slitið á Stakkó í morgun.

Skólaslit Grunnskóla Vestmannaeyja fóru fram á Stakkó í morgun við hátíðlega athöfn. Nemendur mættu fyrst í skólann klukkan 10:00 og gengu þaðan ásamt kennurum yfir á Stakkó þar sem skólaárinu var formlega slitið.

Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Lúðrasveit Vestmannaeyja lék fyrir gesti og nemendur í yngri bekkjum sýndu dansatriði sem þeir höfðu æft fyrir tilefnið.

Þrátt fyrir að rigning hafi látið á sér kræla var veðrið ágætt og stemningin góð. Börnin létu veðrið ekki aftra sér og nutu dagsins.

Með skólaslitunum lýkur enn einu skólaári og nú tekur sumarfríið við hjá nemendum.

Nýjustu fréttir

Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Selma rifjar upp árin með Gunnari á sjó og í landi 
Alls útskrifuðust 45 nemendur frá FÍV af sex brautum
Kraftmikil önn og árangur nemenda í forgrunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.