Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé
Auk þess að undirrita skuldbindandi skilmálablað vegna alþjóðlegs sambankaláns :: Langstærstur hluti fjármögnunarinnar kom frá núverandi hluthöfum
Mynd/Laxey
Uppbygging Laxeyjar við Viðlagafjöru heldur áfram en félagið hefur nú tryggt sér nýtt hlutafé og undirritað skilmálablað vegna umfangsmikillar lánsfjármögnunar. Ljósmynd: Aðsend.

Laxey hefur lokið 6,7 milljarða króna hlutafjárútboði til fjármögnunar næsta áfanga í uppbyggingu félagsins í Vestmannaeyjum. Eftirspurn eftir hlutum í útboðinu var verulega umfram framboð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Upphaflega var stefnt að því að sækja 5,8 milljarða króna í nýtt hlutafé. Langstærstur hluti fjármögnunarinnar kom frá núverandi hluthöfum félagsins, en að auki bættust nýir fjárfestar í hópinn. Þátttakan endurspeglar áframhaldandi traust á stefnu félagsins, árangri og vaxtarmöguleikum til lengri tíma.

Frá stofnun hefur Laxey nú aflað um 29 milljarða króna í hlutafé og þar með byggt upp traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu félagsins.

Stuðningur leiðandi alþjóðlegra lánveitenda

Samhliða hlutafjárútboðinu hefur Laxey undirritað skuldbindandi skilmálablað vegna sambankaláns sem DNB Carnegie hafði umsjón með. lánveitendur eru DNB, Rabobank og Arion banki, auk þess sem Eksfin tekur þátt sem lánveitandi.

Fjármögnunin verður nýtt til endurfjármögnunar núverandi skulda og til að fjármagna næsta áfanga í uppbyggingu félagsins. Hún felur jafnframt í sér mikilvæga viðurkenningu á stöðu LAXEY sem öflugs landeldisfélags á alþjóðavettvangi. Gert er ráð fyrir að fjármögnuninni verði lokað fyrir lok september 2026.

Tæpum þremur árum eftir að framleiðsla á laxi hófst með móttöku á fyrstu hrognum í seiðastöð félagsins, hefur Laxey þannig tryggt sér áframhaldandi stuðning bæði hluthafa og leiðandi alþjóðlegra lánveitenda, sem markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu félagsins.

Uppbygging á 35 þúsund tonna landeldi á laxi

Fjármagnið verður nýtt til að ljúka uppbyggingu á þriðja áfanga félagsins og byggingu fyrsta áfanga Seiðastöðvar II.

Hin nýja seiðastöð verður í fyrstu hönnuð fyrir framleiðslu á 5 milljónum seiða á ári, með möguleika á stækkun upp í allt að 15 milljón seiði á ári.

Þriðji áframeldisáfanginn er hluti af sex áfanga uppbyggingaráætlun Laxey sem miðar að framleiðslu á um 35 þúsund tonnum af slægðum laxi á ári þegar uppbyggingu verður lokið.

Miðað við núverandi áætlanir félagsins mun hlutafjárútboðið og fyrirhuguð lánsfjármögnun tryggja fjármögnun fyrir framleiðslugetu sem nemur um 17 þúsund tonnum af slægðum laxi á ári. Frekari uppbygging umfram það verður að stærstum hluta fjármögnuð með sjóðstreymi frá rekstri og lánsfé.

Framgangur samkvæmt áætlun

Framgangur verkefna hjá Laxey hefur haldið áfram í samræmi við áætlanir félagsins.

Í nóvember 2025 var fyrsti lax félagsins tekinn til slátrunar, aðeins 23 mánuðum eftir að fyrstu hrognin bárust til félagsins. Meðalþyngd fisksins var um 5 kíló. Frá þeim tíma hefur laxi verið slátrað vikulega og laxinn dafnað vel, sem kemur m.a. fram í háu hlutfalli fyrsta flokks afurða. Gert er ráð fyrir að Laxey framleiði um 4.000 tonn af laxi á árinu 2026.

Í maí 2026 tók stórseiðahús félagsins til starfa, aðeins tíu mánuðum eftir að framkvæmdir hófust. Samhliða því að annar áfangi félagsins er tekinn í fullan rekstur, sem gert er ráð fyrir að taki við fyrstu seiðunum í haust, mun stórseiðahúsið auka framleiðslugetu félagsins og styðja við tvær megintekjulindir þess; framleiðslu á laxi og sölu stórseiða.

Verðmætasköpun í Vestmannaeyjum

Laxey er byggt upp í Vestmannaeyjum þar sem félagið hefur skapað yfir 100 störf og fest sig í sessi sem einn stærsti vinnuveitandi einkageirans í sveitarfélaginu.

Núverandi hluthafar stóðu að stærstum hluta að baki hlutafjárútboðinu, þar á meðal kjölfestufjárfestir félagsins, ÓS-fjölskyldan, sem hefur komið að uppbyggingu Laxey frá upphafi.

„Þessi fjármögnun markar mikilvægan áfanga fyrir Laxey,“ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður félagsins.

„Besta staðfesting sem fyrirtæki getur fengið á að vera á réttri leið er þegar núverandi hluthafar ákveða að auka við fjárfestingu sína. Áframhaldandi stuðningur þeirra endurspeglar traust á stefnu okkar, starfsfólkinu og þeim árangri sem náðst hefur.“

Horft til framtíðar

Laxey hefur á tiltölulega skömmum tíma þróast úr metnaðarfullri hugmynd yfir í atvinnurekstur með vikulegri framleiðslu, rúmlega 100 starfsmenn og skýra framtíðarsýn um áframhaldandi vöxt.

Hlutafjárútboðið og fyrirhuguð lánsfjármögnun skapa sterkan og sjálfbæran grunn fyrir næsta vaxtarskeið félagsins, þar sem Laxey heldur áfram uppbyggingu á nýrri atvinnugrein í Vestmannaeyjum.

„Laxey býr yfir öflugu stjórnendateymi og fjölbreyttum hluthafahópi þar sem fara saman innlendir, strategískir og fjárhagslegir fjárfestar. Sú samsetning hefur skapað sterkan grunn fyrir áframhaldandi vöxt félagsins. Með þátttöku leiðandi alþjóðlegra banka í fjármögnun félagsins erum við vel í stakk búin til að halda áfram að leiða uppbyggingu landeldis á Atlantshafslaxi sem nýrrar atvinnugreinar,“ segir Daði Pálsson, forstjóri Laxey.

DNB Carnegie var umsjónaraðili hlutafjárútboðsins ásamt Arion banka. MAR Advisors var fjármálaráðgjafi Laxey við framkvæmd hlutafjárútboðsins, segir í tilkynningu félagsins.

Gunnar Páll Hálfdánsson, framleiðslustjóri Laxeyjar, með lax úr eldi félagsins. Samkvæmt áætlunum stefnir félagið að framleiðslu um 4.000 tonna af laxi á þessu ári. Ljósmynd: Aðsend.

Nýjustu fréttir

Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé
Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt
Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Heimaklettur í allri sinni dýrð – en gönguleiðin bíður enn úrbóta
Fjögur lið frá ÍBV tóku þátt á Norðurálsmótinu
Stórleikur á Hásteinsvelli í kvöld
Þriðji sigur ÍBV í röð kom gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.