Eyjafréttir fengu senda mynd sem sýnir gömul asbeströr liggja í óreiðu austur á Hrauni. Rörin blasa við þeim sem fara um hraunið og þykja ekki til fyrirmyndar.
„Ég fór og skoðaði þetta áðan og verð að viðurkenna að þetta er ekki til fyrirmyndar,“ sagði Kjartan Vídó hjá Vestmannaeyjabæ eftir að hann fékk myndina í hendur. Að sögn Kjartans hafa rörin líklega verið sett þarna þegar nýja mölunarsvæðið var tekið í notkun.
„Þetta eru gömul rör frá hraunhitaveitunni sem innihalda asbest að einhverju leyti. Ég er búinn að setja Dagnýju Hauksdóttur, umhverfisfulltrúa bæjarins í málið og við þurfum að fá leyfi frá heilbrigðiseftirlitinu til að urða þau. Sýni verður tekið úr röri á morgun og sent í greiningu. Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir getum við hafist handa við að fjarlægja þessi rör og önnur sem kunna að vera á svæðinu,“ sagði Kjartan.