Lögreglan minnir á mikilvægi umferðaröryggis á Orkumótinu
Mikill fjöldi streymir nú til Eyja vegna Orkumótsins. Mynd/ Halldór B.

Á morgun, fimmtudag hefst Orkumótið, en búist er við yfir 1.000 þátttakendum auk fjölmargra gesta.

Af því tilefni hvetja lögregla og skipuleggjendur mótsins vegfarendur til að sýna aðgát í umferðinni, sérstaklega í nágrenni knattspyrnuvallanna þar sem búast má við miklu mannlífi og aukinni umferð.

Sérstaklega er vakin athygli á Hamarsvegi sem er aðal aðkomuleið að vallarsvæðinu. Bannað er að stöðva eða leggja ökutækjum á veginum þar sem slíkt getur skapað hættu fyrir gangandi vegfarendur, tafið umferð og skert aðgengi neyðar- og þjónustuaðila.

Ökumenn eru hvattir til að aka varlega, virða umferðarmerki og lagningarbann og sýna gangandi vegfarendum sérstaka tillitssemi, ekki síst börnum og ungmennum á leið til og frá leikjum.

Lögreglan verður með aukið umferðareftirlit á meðan mótinu stendur yfir og mun meðal annars fylgjast með hraða, lagningum, bílbeltanotkun og farsímanotkun við akstur, auk annarra þátta sem varða umferðaröryggi.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.