Bergey með blandaðan afla
sjomadur_bergey_opf_22
Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í heimahöfn í Vestmannaeyjum mánudaginn 22. júní og aftur í gær. Rætt er stuttlega við Jón Valgeirsson skipstjóra á vefsíðu Síldarvinnslunnar og er hann spurður um veiðarnar.

„Við lönduðum fullfermi mánudaginn 22. júní en héldum síðan ekki til veiða á ný fyrr en á fimmtudag. Síðan lönduðum við fullfermi á ný í gær. Í fyrri túrnum var veitt á Víkinni og Pétursey og reyndar einnig á Ingólfshöfða. Aflinn var blandaður. Í seinni túrnum vorum við allan tímann á Ingólfshöfðanum og áfram var aflinn blandaður; þorskur, ýsa. ufsi og koli. Þarna var í reyndinni ágæt veiði og fiskurinn sem fékkst var hinn fallegasti. Við munum halda til veiða á ný á fimmtudag,” sagði Jón.

Nýjustu fréttir

Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.