Rúmlega fimmtugur karlmaður, sem spilar reglulega í leikjum íslenskrar Getspár, neyddist til að taka örlitla pásu á annasömum vinnudegi vegna hægagangs samstarfs félaga. Á meðan hann beið heyrði hann Eurojackpot-auglýsingu í útvarpinu og var ekki lengi að grípa símann, opna lottó appið og kaupa einn miða með sjálfvali.
Töfin átti heldur betur eftir að skila sér. Daginn eftir, þegar fjölskyldumeðlimur minntist á sína eigin lottóheppni, laumaðist hann í símann til að athuga með miðann sinn. Þar blasti við 3. vinningur upp á 64,9 milljónir!
Rétti hann þá eiginkonunni símann sem ætlaði ekki að trúa þessu. Vinningurinn kemur á frábærum tíma því hjónin hafa verið að safna sér fyrir framtíðar framkvæmdum. Hluta vinningsins ætlar hann að nýta til að aðstoða börnin sín sem safna fyrir fyrstu fasteigninni.
Starfsfólk Íslenskrar getspár hefur það skemmtilega hlutverk að slá reglulega á þráðinn til nýrra vinningshafa með góð tíðindi. Heppnin virðist vera með Íslendingum þessa dagana og gleðin alltumlykjandi. Allir vinningshafar fá innilegar hamingjuóskir og um leið fá allir spilarar innilega þakkir fyrir veittan stuðning. Hann skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélög um land allt, þar sem þau njóta góðs af öllum þeim ágóða sem Lottó gefur af sér, segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá.